Beint í efni

Mol­inn - mið­stöð unga fólks­ins

Molinn er vettvangur fyrir ungt fólk þar sem áhersla er lögð á jákvætt félagslegt umhverfi og fjölbreyttar leiðir til þátttöku. Markmiðið er að bjóða upp á starf og þjónustu sem tekur mið af áhuga og þörfum ungs fólks.

Hvað er í boði?

Ungmenni í Kópavogi

Molinn býður ungu fólki upp á jákvætt félagslegt umhverfi þar sem öll geta fundið eitthvað við sitt hæfi.

Hvað er Molinn?

Markmið Molans er að bjóða ungu fólki upp á þjónustu sem höfðar til þeirra og það kallar eftir. Í húsnæði Molans er þráðlaus netaðgangur og gestir geta fengið afnot af tölvum. Hægt er að nýta aðstöðuna til ýmiskonar afþreyingar, en í Molanum er pool borð, aðstaða til að læra, horfa á sjónvarpið, spila tölvuleiki og fleira.

Aðstaðan

Í húsnæði Molans er þráðlaus netaðgangur og gestir geta fengið afnot af tölvum. Hægt er að nýta sér aðstöðuna til ýmiskonar afþreyingar, en í Molanum er pool borð, aðstaða til að læra, horfa á sjónvarpið, spila tölvuleiki og fleira. Einnig er glæsilegt er stúdíó sem ungmenni hafa aðgang að og geta nýtt.

Skapandi starf

Molinn leggur metnað í að skapa rými fyrir ungt fólk til listsköpunar.

Umsjónarmaður skapandi verkefna veitir leiðsögn og skipuleggur námskeið, smiðjur, sýningar og viðburði tengda list, menningu og nýsköpun.

Molinn hefur umsjón með skapandi sumarstörfum þar sem ungt fólk fær tækifæri til að þróa hugmyndir sínar og vinna sjálfstætt.

Í Molanum er einnig upptökustúdíó sem ungmenni hafa aðgang að og geta nýtt í samráði við starfsfólk.

Ráð­gjöf og stuðn­ing­ur

Ráðgjöf og stuðningur

Í Molanum starfar ráðgjafi ungmenna sem veitir stuðning og aðstoðar ungmenni við að finna þjónustu sem hentar þörfum þeirra. Ráðgjafinn vinnur bæði með einstaklingum og hópum.

Ráðgjöf í samstarfi við Bergið headspace

Í samstarfi við Bergið headspace er boðið upp á ráðgjöf fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára.

Þjónustan er gjaldfrjáls og hægt að sækja hana að eigin frumkvæði.

Ráðgjafi frá Berginu headspace er með viðveru í Molanum á miðvikudögum frá kl. 09:00–12:00. Hægt er að fá viðtal með stuttum fyrirvara og einnig er boðið upp á fjarráðgjöf í gegnum Kara Connect.

Hvernig er sótt um?

  • Fara á vefsíðu Bergið headspace og óska eftir þjónustu.
    (Taka skal fram að óskað sé eftir viðtali í Molanum í Kópavogi)
  • Starfsmenn Molans geta einnig aðstoðað við að finna tíma.

Opn­un­ar­tími

Mánudagar 14.00-17.00

Þriðjudagar 14.00-22.00

Miðvikudagar 14.00-22.00

Fimmtudagar 14.00-22.00

Hægt er að nýta húsnæði Molans utan opnunartíma í samráði við starfsfólk.

Molinn - miðstöð unga fólksins - Kópavogsbær