Breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku.
Kynningargögn
- 20220428_Breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku_minnisblað skipulagsdeildar.
- Breikkun suðurlandsvegar_greinargerð um framkvæmdaleyfi.
- Umsókn um framkvæmdaleyfi.
- Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir breikkun Suðurlandsvegar frá fossvöllum að Lögbergsbrekku.
- Greinargerð lýsing framkvæmda Hringvegur_Fossvelli-Hólmsá.
- Áhættumat vegna vatnsverndar Áfangi 1.
- Þjóðlenda - samþykki FOR.
- Umsögn skipulagsdeildar dags. 1. október 2021.
- Framkvæmdaleyfi. Undirritað.
- Matsskýrsla Suðurlandsvegur.
- Álit Skipulagsstofnunar dags. 9. júlí 2009..
- HHGK Starfsleyfi Vegagerðin drög.
- HHGK Starfsleyfi verktaka drög.
- Gunnarshólmi viðbrögð VEG.
- Umsögn Veitna vegna framkvæmdaleyfis um tvöföldun Suðurlandsvegar.
- Athugasemd - Þröstur Ólafsson og Þórunn Klemenzdóttir.
- Veitur_viðbrögð_VG.
- B-001 Yfirlitsmynd.
- Umsögn MÍ.
- Umsögn HHK til Kópavogsbæjar, framkvæmdaleyfi.
- Rafrænt svarbréf skipulagsnefndar 202107008.
- Athugasemd Gunnarshóla.
- Athugasemd Waldorfskóla
- breikkun-sudurlandsvegar_utgefid-framkvaemdaleyfi-dags-18-mai-2022670.pdf
Úr fundargerð skipulagsráðs 2. maí 2022:
"Á fundi skipulagsráðs 2. maí 2022 var lögð fram að nýju umsókn Vegagerðarinnar dags. 27.maí 2021 með breytingum dags. í júlí 2021, um framkvæmdaleyfi fyrir breikkun Suðurlandsvegar frá Fossvöllum að Lögbergsbrekku. Umsókninni fylgir framkvæmdarlýsing dags. í júlí 2021, uppdrættir í mkv. 1:10.000 dags. 21. apríl 2021, matsskýrsla dags. í júní 2009, áhættumat vatnsverndar dags. í maí 2021, jarðkönnun dags í nóvember 2008 ásamt fylgigögnum.
Jafnframt er lögð fram að nýju umsögn skipulagsdeildar dags. 1. október 2021 ásamt athugasemdum og ábendingum sem bárust á kynningartíma sem lauk 17. september 2021.
Þá lögð fram greinargerð dags. 29. apríl 2022 um framkvæmdaleyfi í samræmi við 2. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Þá lagt fram minnisblað skipulagsdeildar dags. 28. apríl 2022 um feril málsins.
Skipulagsráð telur að framlögð gögn lýsi framkvæmdinni á fullnægjandi hátt og framkvæmd sú sem lýst er í matsskýrslu dags. í júní 2009. Skipulagsráð hefur jafnframt tekið rökstudda afstöðu til álits Skipulagsstofnunar um mat á umhverfisáhrifum. Sjá nánar í greinargerð framkvæmda-leyfis dags. 29. apríl 2022.
Skipulagsráð samþykkir umsóknina með tilvísun í 13. og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 með þeim takmörkunum að aðeins sé um að ræða lagningu vegarins og að hann verði tekinn í notkun samhliða síðasta hluta áfangans. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar."
Á fundi bæjarstjórnar 10. maí 2022 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest.