Beint í efni
Til baka í yfirlit

Smiðju­veg­ur 7

Auglýsing

Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti þann 25. mars 2025 með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa tillögu að breyttu deiliskipulagi lóðarinnar nr. 7 við Smiðjuveg. Í breytingunni felst 1.485,1 m² viðbygging á tveimur hæðum (1. hæð og kjallari) á norð-vestur hluta lóðarinnar. Á austurhlið hússins kæmi 35 m² viðbygging á einni hæð. Byggingarmagn eykst úr 3.554 m² í 5.039 m² og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,7.

Erindinu fylgja kynningaruppdrættir í mkv. 1:2000, 1:1000 og 1:500 dags. 20. júní 2025.

Ofangreind tillaga er aðgengileg á vef Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is og í skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is/ málsnr. 901/2025. Ef óskað er eftir nánari upplýsingum um tillögurnar er hægt að senda fyrirspurn á starfsfólk skipulagsdeildar á netfangið skipulag@kopavogur.is.

Eru þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér tillögurnar. Kynningartími hefst þann 4. júlí 2025. Athugasemdir og ábendingar við framlagðar tillögu skulu hafa borist gegnum Skipulagsgátt www.skipulagsgatt.is, málsnr. 901/2025, eigi síðar en föstudagsins 15. ágúst 2025.