Beint í efni
Til baka í yfirlit

Vall­ar­gerði 22

Kynning á byggingarleyfi í Kópavogi

Á fundi skipulagsráðs Kópavogs 1. mars 2021 var lagt fram erindi Hrólfs Karls Cela arkitekts dags. 3. febrúar 2021 fh. lóðarhafa í Vallargerði 22. Á lóðinni er 113 m2 steinsteypt einbýlishús með sambyggðri 41,6 m2 bílgeymslu, byggt 1965. Óskað er eftir að reisa um 30 m2 viðbyggingu á suðurhlið hússins og koma þar fyrir herbergi ásamt baðherbergi. Uppdráttur í mkv. 1:100 og 1:500 dags. 3. febrúar 2021.

Með vísan til 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er eftirtöldum lóðarhöfum gefinn kostur á að tjá sig um tillöguna:

Vallargerðis 20, 24, Melgerðis 19, 21, 23 og Kópavogsbrautar 58.

Kynning hefst þann 4. mars 2021 og skal ábendingum og athugasemdum við framlagða tillögu skila skriflega til Skipulagsdeildar Kópavogs, Digranesvegi 1, 200 Kópavogi eða með tölvupósti á skipulag@kopavogur.is fyrir kl. 15:00 fimmtudaginn 8. apríl 2021.