Beint í efni

Fé­lags­starf og heilsu­efl­ing

Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt félagsstarf og heilsueflingu fyrir eldra fólk með áherslu á virkni, þátttöku og góðan félagsskap.

Fé­lags­starf eldri borg­ara

Félagsstarf eldra fólks er mjög öflugt í Kópavogi og fer fram í þremur félagsmiðstöðvum.

Félagsmiðstöðvarnar eru opnar fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.

Roðasalir

Sérhæfð dagþjálfun fyrir eldra fólk með heilabilun.

Dagþjálfunin er ætluð öldruðum Kópavogsbúum með heilabilun.

Lögð er áhersla á fjölbreytta virkni, félagslegan stuðning og vellíðan í daglegu lífi. Markmiðið er að viðhalda færni og sjálfstæði eins lengi og kostur er og styðja þannig við að fólk geti búið sem lengst heima.

Pláss er fyrir 20 einstaklinga.

  • Sími dagdeildar: 441 9623
  • Deildarstjóri dagþjálfunar er Kristín Margrét Jakobsdóttir, sími 441 9622.
Glatt á hjalla í mælingum Virkni og vellíðan.

Virkni og vel­líð­an

Verkefnið Virkni og vellíðan býður eldri bæjarbúum í Kópavogi upp á fjölbreytta og heilsueflandi hreyfingu. Markmiðið er að efla líkamlega og andlega heilsu í góðum félagsskap og stuðla að virkni og vellíðan á efri árum.

Sjá nánar