Beint í efni

Hús­næð­is­bæt­ur og sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur

Íbúar á almennum leigumarkaði og í félagslegum leiguíbúðum geta sótt um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS).

Leigjendur á almennum leigumarkaði geta einnig átt rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi.

Um­sókn­ar­ferli

Húsnæðisbætur eru mánaðarlegar greiðslur ætlaðar til að aðstoða fólk á leigumarkaði.

Kópavogsbær

Fé­lags­legar leigu­íbúð­ir

Félagslegar leiguíbúðir eru fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem eiga erfitt með að tryggja sér öruggt húsnæði og uppfylla ákveðin skilyrði Kópavogsbæjar.

Nánar um þjónustuna

Sér­stak­ur hús­næð­is­stuðn­ing­ur

Ekki þarf að sækja sérstaklega um þennan stuðning

Ef umsókn um húsnæðisbætur er samþykkt er sjálfkrafa metið hvort umsækjandi eigi rétt á sérstökum húsnæðisstuðningi.

Húsnæðisstuðningi er ætlað að styðja þau sem bera hlutfallslega hæstan húsnæðiskostnað miðað við tekjur, sérstaklega tekju- og eignaminni leigjendur.

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun sér um afgreiðslu umsókna og greiðir stuðninginn út með sama hætti og húsnæðisbætur.