Beint í efni

Barna­vernd

Öll höfum við tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum og skiptir hún gríðarmiklu máli fyrir velferð barna.

Þú getur óskað eftir að tilkynning sé nafnlaus gagnvart þeim sem hún snýr að.

Ég er barn og hef áhyggjur

Ef þú hefur áhyggjur af einhverju geturðu sagt okkur frá því hér.

Öll börn eiga rétt á vernd og um­önn­un.

Mikilvægt er að hafa samband við barnavernd ef þú hefur áhyggjur af barni.

Það á til dæmis við ef:

  • Barn býr við erfiðar aðstæður.
  • Uppeldi er ekki viðeigandi.
  • Barn sýnir áhættuhegðun.

Einnig er mikilvægt að láta vita ef áhyggjur eru af heilsu eða öryggi ófædds barns, til dæmis vegna lífernis á meðgöngu.

Þú mátt skila á þínu móðurmáli, ef þú vilt.

You may write in your mother´s tongue, if you prefer.

Możesz napisać w swoim ojczystym języku, jeśli chcesz.

Í neyðartilvikum skal hringja í 112

Til­kynn­ing­ar­hnapp­ur til barna­verndar

Á spjaldtölvum nemenda í 5.–10. bekk í grunnskólum Kópavogs er sérstakur hnappur sem veitir aðgang að síðu þar sem börn geta sagt frá líðan sinni, áhyggjum eða aðstæðum og óskað eftir aðstoð.

Þegar barn sendir beiðni hefur starfsmaður barnaverndar samband til að afla nánari upplýsinga. Foreldrar eru upplýstir ef ástæða þykir til. Úrvinnsla fer eftir verkferlum barnaverndar.

Kópavogsbær vinnur að innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þar er meðal annars lögð áhersla á rétt barna til að tjá sig um eigin málefni (12. grein).

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar veitir deildarstjóri barnaverndar í síma 441 0000.