Fjölskyldur og börn
Börn og fjölskyldur í Kópavogi geta fengið ráðgjöf og fjölbreyttan stuðning þegar þörf er á, til dæmis vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.
Markmið stuðningsins er að styrkja foreldra og forsjáraðila í uppeldishlutverki sínu og skapa börnum örugg og þroskavænleg uppeldisskilyrði.
Ráðgjöf og stuðningur er veittur í gegnum barna- og fjölskylduteymi á velferðarsviði. Bókaðu samtal til að fá ráðgjöf og finna úrræði sem henta þínum aðstæðum.

Farsæld barna
Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna sem tryggir að börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa.
Farsæld barna
Stuðningur við börn og fjölskyldur
Börn og fjölskyldur í Kópavogi geta fengið ráðgjöf og fjölbreyttan stuðning þegar þörf er á, til dæmis vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda eða fötlunar.
Sjá nánar
Skammtímadvöl
Skammtímadvöl er ætluð börnum og ungmennum sem þurfa stuðning umfram jafnaldra vegna fötlunar eða langvarandi stuðningsþarfa.
Sjá nánar
Námskeið og foreldrafræðsla
Boðið er upp á fjölbreytt námskeið fyrir foreldra og fjölskyldur með áherslu á fræðslu, ráðgjöf og hagnýtar leiðir sem nýtast í daglegu lífi.
Framboð námskeiða getur verið mismunandi milli tímabila.
Sjá nánar
Barnavernd
Öll höfum við tilkynningarskyldu samkvæmt barnaverndarlögum og skiptir hún gríðarmiklu máli fyrir velferð barna.
Í neyð hringið í 112.
Sjá nánar