Námskeið og foreldrafræðsla
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytt námskeið og foreldrafræðslu sem ætlað er að styðja foreldra og fjölskyldur í daglegu lífi. Námskeiðin taka mið af ólíkum þörfum barna og foreldra og byggja á hagnýtri fræðslu, ráðgjöf og gagnreyndum aðferðum.
Framboð námskeiða getur verið mismunandi milli tímabila og ný námskeið bætast reglulega við.
Ráðgjöf og stuðningur er veittur í gegnum barna- og fjölskylduteymi á velferðarsviði. Bókaðu samtal til að fá ráðgjöf og finna úrræði sem henta þínum aðstæðum.
Klókir litlir krakkar
Fyrir foreldra barna á aldrinum 3–6 ára.
Klókir litlir krakkar er fyrir foreldra barna á aldrinum 3–6 ára sem eru með kvíða eða í áhættuhópi fyrir að þróa með sér kvíðaraskanir.
Á námskeiðinu er farið yfir aðferðir til að draga úr kvíða og auka sjálfstraust barna.
Fjallað er meðal annars um:
- Eðli kvíða og mikilvæg atriði í uppeldi barna með kvíða.
- Aðferðir til þess að takast á við kvíða.
- Að þjálfa raunsæja hugsun.
- Að takast á við ótta í litlum skrefum.
- Notkun kvíðastiga.
- Ákveðniþjálfun.
- Að byggja upp hugrekki og sjálfstraust.
- Að draga úr forðunarhegðun.
- Að nýta hvatningu og umbun.
Námskeiðið byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar og er þróað hjá áströlsku rannsóknarmiðstöðinni Macquarie University Anxiety Research Unit (MUARU) í samvinnu við Ronald M. Rapee og samstarfsmenn hans.
Námskeiðið samanstendur af sex skiptum, einu sinni í viku, um tveir tímar í senn.
Mikilvægt er að foreldrar mæti í alla tímana og mælt er með að báðir foreldrar taki þátt. Aðeins er pláss fyrir foreldra 8 barna á hverju námskeiði.
Námskeiðsgjald er 9.500 kr. Handbók fyrir foreldra er innifalin í verði.
Leiðbeinendur:
Elísa Guðnadóttir, sálfræðingur
Guðlaug Marion Mitchison, yfirsálfræðingur
Uppeldi barna með ADHD
Fyrir foreldra barna á aldrinum 5–12 ára.
Námskeiðið er fyrir foreldra barna á aldrinum 5–12 ára með hamlandi ADHD-einkenni.
Á námskeiðinu fá foreldrar fræðslu um áhrif ADHD á daglegt líf barna og læra uppeldisaðferðir sem henta þessum hópi.
Lögð er áhersla á að:
- Skoða núverandi stöðu.
- Setja markmið og gera áætlanir.
- Fyrirbyggja vanda sem getur komið upp.
Markmiðið er að foreldrar læri hagnýtar og sannreyndar aðferðir sem nýtast þeim til lengri tíma.
Í hverjum tíma veita leiðbeinendur fræðslu um ákveðin grundvallaratriði. Rík áhersla er lögð á umræður og virka þátttöku foreldra til að tryggja að námskeiðið nýtist hverjum og einum sem best.
Milli tíma þarf að vinna heimaverkefni sem rædd eru í næsta skipti og ráðgjöf er gefin um framhaldið.
Hvert námskeið er tólf klukkustundir sem skiptist í sex skipti, tvær klukkustundir í senn.
Foreldramiðað HAM
Fyrir foreldra barna á aldrinum 6-12 ára.
Námskeiðið er fyrir foreldra 6 – 12 ára barna sem sýna einkenni kvíða.
Algeng kvíðaeinkenni sem börn sýna eru til dæmis:
- Ótti við að sofa ein.
- Að labba ein úti.
- Ótti við hunda.
- Ótti við að eitthvað komi fyrir foreldra sína.
Markmið námskeiðsins er að kenna foreldrum aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar og efla foreldra í að nota aðferðirnar með barninu sínu til að vinna á kvíða, efla hugrekki og sjálfstraust.
Á námskeiðinu er unnið með bókinni Hjálp fyrir kvíðin börn og er ætlast til að foreldrar vinni heimaverkefni milli tíma, sem fela meðal annars í sér að lesa kafla í bókinni og æfa barnið í að takast á við aðstæður sem það óttast.
Foreldrar fá öll námskeiðsgögn, þar með talið bókina Hjálp fyrir kvíðin börn. Til að námskeiðið nýtist foreldrum og barni sem best er mælst til að foreldrar séu búnir að lesa bókina áður en námskeiðið hefst. Bókin er einnig aðgengileg sem hljóðbók á Storytel.
Áður en námskeiðið hefst koma foreldrar og barn í viðtal til að fara betur yfir innihald námskeiðsins og meta hvort námskeiðið henti barni og foreldrum eða forsjáraðilum. Í viðtalinu er einnig farið yfir mikilvægi þess að foreldrar skuldbindi sig til að mæta í alla námskeiðstíma og sinna heimavinnu á milli tíma. Námskeiðið samanstendur af forviðtali, fimm tveggja tíma námskeiðstímum og stuttu símaviðtali mánuði eftir síðasta tíma.
Námskeiðsgjald er: 12.500 krónur. Bókin „Hjálp fyrir kvíðin börn“ og önnur námskeiðsgögn eru innifalin í verði.