Beint í efni
Til baka í yfirlit

Akst­urs­þjón­usta Kópa­vogs um jól og ára­mót 2025/2026

Akstur á stórhátíðardögum um jól og áramót 2025/2026 fyrir fólk með fötlun og eldra fólk verður sem hér segir:

Desember í Kópavogi.
Desember í Kópavogi.

Akstur á stórhátíðardögum um jól og áramót 2025/2026 fyrir fólk með fötlun og eldra fólk verður sem hér segir:

  • Aðfangadagur jóla, 24. desember: 11:00- 14:00
  • Jóladagur 25. desember: 11:00- 14:00
  • Annar í jólum, 26. desember: 11:00- 24:00
  • Gamlársdagur, 31. desember: 11:00- 14:00
  • Nýársdagur, 1. janúar: 11:00- 14:00

Enginn akstur verður eftir 14:00 á aðfangadag jóla, 24. des, jóladag, 25. des, gamlársdag, 31. des og nýársdag, 1. jan.

Hjólastólabílar - undantekning

Hjólastólanotendur geta pantað ferðir sem fara á eftir klukkan 14:00 þessa stórhátíðardaga.

Nauðsynlegt er að panta „hjólastólabílana“ hjá akstursþjónustunni Teit fyrir 16. desember 2025 - eftir þann tíma er það ekki hægt.