Forvarnarsjóður Kópavogs 2026 auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum
Markmið Forvarnarsjóðs er að veita einstaklingum, börnum og ungmennum, félagasamtökum, fyrirtækjum og stofnunum styrki til verkefna sem hafa það að leiðarljósi að efla forvarnir, heilsu og vellíðan Kópavogsbúa.
Forvarnarsjóður Kópavogs leggur sérstaka áherslu á börn og ungmenni og verkefni sem hafa jákvæð áhrif á líðan, heilbrigði og framtíð þeirra.
Styrkir úr sjóðnum eru veittir til verkefna sem falla undir að minnsta kosti eitt af eftirfarandi áhersluatriðum:
- Verkefni tengd lögum um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna
- Skipulagt skóla- og frístundastarf
- Bætt lýðheilsa barna og ungmenna
- Skilningi á samfélagi, umhverfi og virðingu fyrir fjölbreytileikanum
- Geðrækt, vellíðan og samkennd
- Forvarnir og heilsuefling í þágu barna og ungmenna
- Virk þátttaka barna og ungmenna í undirbúningi, mótun og framkvæmd verkefna
Ekki er veittur styrkur til reglubundins reksturs, launakostnaðar eða til sama verkefnis oftar en einu sinni, nema sérstakur rökstuðningur fylgi.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 11. nóvember 2026.
Bent er á að eingöngu er hægt að sækja um styrk á heimasíðu Kópavogsbæjar, kopavogur.is, inn á Minn Kópavogur.
Frekari upplýsingar um Forvarnarsjóð Kópavogs veita Victor Berg Guðmundsson, deildarstjóri frístundadeildar (victor.berg.gudmundsson@kopavogur.is) og Ingibjörg Ýr Pálmadóttir, deildarstjóri grunnskóladeildar (ingibjorgpa@kopavogur.is)

