Vel heppnaðir íbúafundir um nágrannavörslu
Kópavogsbær hélt tvo opna íbúafundi um nágrannavörslu í október í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Fundirnir voru haldnir í Barnaskóla Kársness 15. október og í Salaskóla 20. október og voru liður í átaki bæjarins til að efla öryggi, samstöðu og samfélagsvitund í hverfum Kópavogs.

Kópavogsbær hélt tvo opna íbúafundi um nágrannavörslu í október í samstarfi við Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu. Fundirnir voru haldnir í Barnaskóla Kársness 15. október og í Salaskóla 20. október og voru liður í átaki bæjarins til að efla öryggi, samstöðu og samfélagsvitund í hverfum Kópavogs.
Markmið fundanna var að kynna hugmyndafræði nágrannavörslu, ræða mikilvægi virkrar samvinnu íbúa og lögreglu og veita hagnýt ráð um hvernig íbúar geta lagt sitt af mörkum til öruggara og samheldnara nærumhverfis. Á fundunum var lögð áhersla á að nágrannavarsla byggi á samhug, samskiptum og sameiginlegri ábyrgð íbúa á nærumhverfi sínu.
„Nágrannavarsla er gott tækifæri fyrir íbúa til að hjálpast að og ánægjulegt að bregðast við ósk íbúa um að halda fundi um viðfangsefnið. Við áttum gott samtal á íbúafundunum sem vonandi skilar sér í aukinni vitund um nærumhverfið og þar með öruggara og samheldnara samfélagi,“ sagði Ásdís Krisjánsdóttir í ávarpi sínu.
Jónatan Guðnason, aðalvarðstjóri í Kópavogi, og Unnar Þór Bjarnason, samfélagslögreglumaður, fóru yfir tölfræði afbrota og útkalla og gáfu góð ráð.
„Það er mikilvægt að fá tækifæri til þess að hitta íbúa og kynna fyrir þeim störf lögreglunnar, leiðir til samvinnu og eiga þetta mikilvæga samtal um öryggi þeirra.
Meginskilaboðin eru að nágrannavarsla snúist ekki um eftirlit heldur samstöðu fólks og virka þátttöku íbúa í eigin nærumhverfi og að sterk tengsl á milli nágranna geti aukið öryggiskennd, stutt við forvarnir og styrkt samfélagið í heild sinni", segja þeir Unnar Þór og Jónatan.
Vigdís Másdóttir kynningar- og markaðsstjóri áætlanir um merkingar bæjarins á nágrannavörslu.
Fundarstjóri var Sigrún María Kristinsdóttir, verkefnastjóri íbúatengsla, en það sköpuðust góðar umræður og sýndu skýr
an áhuga íbúa á því að efla samstarf í hverfum bæjarins.
Kópavogsbær þakkar öllum þeim sem mættu á fundina og tóku þátt í samtalinu um hvernig megi áfram styrkja öryggi og lífsgæði í hverfum Kópavogs.


