Álfhólsskóli og Snælandsskóli taka upp kennsluhætti Íslenskuskólans
Álfhólsskóli og Snælandsskóli hafa hafið innleiðingu á kennsluháttum Íslenskuskólans eftir að kennarar skólanna og ráðgjafar á menntasviði Kópavogsbæjar sóttu námskeið um aðferðir hans.

Markmiðið er að styrkja íslenskukennslu fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál og efla markvissa orðaforðauppbyggingu.
Íslenskuskólinn afhenti skólunum sérstaka kennslumöppu með fjölbreyttu námsefni, myndrænum orðaforðaspjöldum og leiðbeiningum fyrir kennara. Kennsluaðferðin byggir meðal annars á markvissri endurtekningu, samræðum, ritun, málfræði og virkri þátttöku nemenda til að styrkja orðaforða og auka málfærni.
Aukinn orðaforði getur haft jákvæð áhrif á nám nemenda í öðrum greinum og er það eitt af meginmarkmiðum Íslenskuskólans. Með innleiðingunni taka Álfhólsskóli og Snælandsskóli mikilvægt skref í að styðja við íslenskunám barna sem hafa íslensku sem annað tungumál og skapa þeim betri forsendur til náms og þátttöku í skólastarfinu.
Íslenskuskólinn á uppruna sinn í verkefni sem Ragnheiður Gísladóttir, kennari við Grunnskólann á Hellu, þróaði og innleiddi. Verkefnið hlaut Menntaverðlaun Suðurlands fyrr á árinu fyrir framúrskarandi framlag til menntamála.


