Hluti stafrænnar þjónustu tímabundið óaðgengilegur vegna öryggisráðstafana
Kópavogsbær hefur tímabundið lokað fyrir aðgang að hluta stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins í varúðarskyni Í ljósi hækkað viðbragðsstigs frá CERT-IS og Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.

Kópavogsbær hefur tímabundið lokað fyrir aðgang að hluta stafrænnar þjónustu sveitarfélagsins í varúðarskyni Í ljósi hækkað viðbragðsstigs frá CERT-IS og Almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra.
Engar vísbendingar eru á þessari stundu um að óviðkomandi hafi komist inn í kerfi Kópavogsbæjar. Í ljósi stöðunnar hefur verið gripið til tímabundinna öryggisráðstafana.
Unnið er að því að meta stöðuna og tryggja öryggi þjónustanna. Opnað verður fyrir þær aftur í áföngum eftir því sem staðfest hefur verið að óhætt sé að gera það.
Kópavogsbær mun birta uppfærðar upplýsingar eftir því sem þær liggja fyrir.
Við biðjum íbúa og aðra notendur þjónustunnar velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.


