Beint í efni
Til baka í yfirlit

Aug­lýst er eft­ir um­sókn­um í Af­reks­sjóð lýð­heilsu- og íþrótta­nefndar Kópa­vogs

Umsóknum skal skila inn rafrænt í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar og er opið fyrir umsóknir frá 1. – 30. nóvember 2026.

Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð íþróttaráðs.
Auglýst er eftir umsóknum í Afrekssjóð íþróttaráðs.

Samkvæmt reglugerð eru markmið sjóðsins eftirfarandi:

  1. Að veita afreksíþróttafólki í íþróttafélögum í Kópavogi fjárhagslegan styrk vegna æfinga og/eða keppni, og þannig búa þeim sem besta aðstöðu til að stunda íþrótt sína.
  2. Að veita afreksíþróttafólki styrk sem á lögheimili í Kópavogi og getur ekki stundað sína íþrótt í bæjarfélaginu.

Umsóknum skal skila inn rafrænt í gegnum þjónustugátt Kópavogsbæjar á www.kopavogur.is

Opið er fyrir umsóknir frá 1. – 30. nóvember 2026.

Frekari upplýsingar veitir Ana Tepavcevic: ana.tepavcevic@kopavogur.is