Beint í efni
Til baka í yfirlit

Rafræn bók­un við­tals­tíma hjá bygg­ing­ar­full­trúa

Frá og með 1. október verður hægt að bóka viðtalstíma hjá byggingarfulltrúa rafrænt í gegnum bókunarkerfið Bookings á vefsíðu Kópavogsbæjar.

Byggingarfulltrúi býður upp á viðtalstíma á þriðjudögum milli 11 og 12, að Digranesvegi 1.
Byggingarfulltrúi býður upp á viðtalstíma á þriðjudögum milli 11 og 12, að Digranesvegi 1.

Frá og með 1. október verður nýtt fyrirkomulag á viðtalstímum byggingarfulltrúa hjá Kópavogsbæ.

Viðtalstíminn verður áfram á þriðjudögum kl. 11:00-12:00, en í stað þess að mæta og bíða eftir næsta lausa tíma á bæjarskrifstofu Kópavogs, Digranesvegi 1, verður nú hægt að bóka viðtalstíma rafrænt í gegnum bókunarkerfið Bookings á vefsíðu Kópavogsbæjar.

Hvernig virkar nýja kerfið?

Þú bókar tíma á https://eldri.kopavogur.is/is/ibuar/thjonusta/boka-samtal Þú færð SMS tilkynningu daginn áður til að minna á bókunina. Þú mætir á bæjarskrifstofu Kópavogs á þeim tíma sem þú bókaðir - engin bið.

Sjá nánar um bókunarkerfið.