Beint í efni
Til baka í yfirlit

Al­myrkvi í Kópa­vogi 12. ág­úst

Þann 12. ágúst 2026 verður almyrkvi á sólu sjáanlegur frá Íslandi í fyrsta sinn síðan 1954. Þetta er jafnframt fyrsti almyrkvinn sem sést frá höfuðborgarsvæðinu síðan 17. júní 1433.

Almyrkvi

Í Kópavogi verður sólin almyrkvuð í um það bil eina mínútu og ögn lengur vestast í bæjarfélaginu. Sólmyrkvinn byrjar sem deildarmyrkvi en þá sést sól að hluta til en deildarmyrkvinn varir í tvær klukkustundir í senn eða frá 16:47 til 18:47 á höfuðborgarsvæðinu. Í Kópavogi verður almyrkvinn í hámarki í kringum 17:49.

Íbúar eru hvattir til þess að njóta almyrkvans heima hjá sér, enda verður hægt að fylgjast með almyrkvanum frá flestum heimilum á höfuðborgarsvæðinu. Kjósi íbúar að hópast saman þá er annars vegar bent á túnið fyrir framan menningarhúsin á Kópavogshæð og hins vegar á Salatún og golfvöllinn í efri byggðum sem æskilega útsýnisstaði.

Menningarhúsin í Kópavogi verða opin á meðan á sólmyrkvanum stendur og hægt verður að komast á salerni. Íbúum er bent á að leggja bílum við Blikasvæðið / Kópavogstún og nota göngubrúna þaðan inn á túnið við menningarhúsin. Ekki er gert ráð fyrir götulokunum í Kópavogi.

Gæta þarf öryggis og augnheilsu ef fylgjast skal með almyrkvanum en nota þarf sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur. Venjuleg sólgeraugu eru ekki örugg til að horfa beint í sólina. Nota þarf sólmyrkvagleraugun í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva. Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund en um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur á að setja þau aftur upp.

Mælt er með því að lesa sér til um hvernig sé hægt að njóta sjónarspilsins á öruggan máta á island.is og solmyrkvi2026.is