Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ungt lista­fólk fagn­aði upp­skeru skap­andi sum­ars í Kópa­vogi

Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa Kópavogs fóru fram dagana 17.-24. júlí þar sem afrakstur ungs listafólks í Skapandi sumarstörfum og Vegglist Kópavogs var kynntur.

Uppskerudagar

Viðburðirnir voru afar vel sóttir og drógu að sér um 250 gesti, auk þeirra sem hafa heimsótt sýningarnar í Náttúrufræðistofu Kópavogs og Gerðarsafni eftir uppskeruvikuna.

Á dagskránni voru leiksýningar, tónleikar, fyrirlestrar, gjörningar, listasýningar, innsetningarverk, kvikmyndir og tískusýning. Meðal hápunkta vikunnar voru frumsýning einleiksins Það sem enginn sagði mér, tónleikar með GÚU og SmÁbreiðum í Salnum og lokaviðburðurinn Ósamhverfa, tilraunakennd tískusýning í bílakjallara Molans sem laðaði að um tæplega 100 gesti.

Í sumar störfuðu þátttakendur að eigin listverkefnum með stuðningi leiðbeinenda og þróuðu hugmyndir sínar frá fyrstu skissu til fullunnar afurðar. Að sögn Klöru Óskar Elíasdóttur, umsjónarkonu Skapandi sumarstarfa, var sérstaklega ánægjulegt að fylgjast með sjálfstrausti og ábyrgð þátttakenda vaxa í gegnum ferlið og sjá þau styðja hvert annað í skapandi vinnu.

Þótt uppskerudögum sé lokið lifa skapandi sumarstörf áfram inn í haustið. Í ágúst verða tvær stuttmyndir frumsýndar í Salnum, útvarpsleikritið Púkablístran verður flutt á VÖKU þjóðlistarhátíð, innsetningarverkið Ef steypan gæti sungið... verður hluti af Hamraborg Festival og D&D-ævintýri Guðmundar Hrafns Geirssonar mun ferðast um grunnskóla Kópavogs. Einnig lauk nýju útilistaverki BLÆS á Himnastiganum í Kópavogi í uppskeruvikunni.

„Það hefur verið ótrúlega gefandi að fylgjast með hugmyndum þróast yfir í metnaðarfull listaverk. Það sem stendur upp úr er að sjá þátttakendur vaxa í sjálfstrausti, taka ábyrgð á eigin verkefnum og styðja hvert annað. Við vonum að þetta sumar verði aðeins upphafið og að þau haldi áfram að skapa og taka pláss í íslensku menningarlífi,“

segir Klara Ósk Elíasdóttir, umsjónarkona Skapandi sumarstarfa í Kópavogi 2026.