Beint í efni
Til baka í yfirlit

Sauna­klefi og inn­rauð­ur klefi opna í Sala­laug

Laugardaginn 25. júlí verða teknir í notkun saunaklefi og innrauður klefi í Salalaug.

Innrauður klefi

Báðir klefarnir eru rúmgóðir og einstaklega fallega hannaðir.

Í hefðbundnu saununni er steinaofn eins of flestir kannast við en í stað þess að vera með fötu og ausu er vatnsskammtari beint fyrir ofan ofninn en hann er tengdur við tímastilltan takka. Hægt verður að ýta á takkann á 90 sekúndna fresti og þá sprautast vatn á steinana sem hækkar hitann og rakann inni í klefanum.

Saunaklefinn og innrauði klefinn verða með sama opnunartíma og Salalaug, frá morgni til kvölds. Gestir sundlaugarinnar geta því heldur betur látið vel um sig fara í nýrri og endurbættri aðstöðu við sundlaugina.

Saunaklefi

Gleðilegt sauna- og sundlaugasumar!