Búsetukjarninn Kleifakór fær Svansvottun
Kópavogsbær hefur hlotið sína fyrstu Svansvottun fyrir nýbyggingu, búsetukjarnann að Kleifarkór, sem er ætlaður fólki með fötlun. Í kjarnanum eru sjö fullb

Kópavogsbær hefur hlotið sína fyrstu Svansvottun fyrir nýbyggingu, búsetukjarnann að Kleifarkór, sem er ætlaður fólki með fötlun. Í kjarnanum eru sjö fullbúnar íbúðir með stuðningi, þar sem lögð er áhersla á öruggt, sjálfbært og vistvænt umhverfi fyrir íbúa.
Svansvottun þýðir að standast þarf strangar kröfur um efnisval, innivist, rakavarnir og fleira, sem tryggir að byggingin sé bæði vistvæn og heilsusamleg.
Afhending á viðurkenningarskjali fór fram í Kleifakór í vikunni, að viðstöddum fulltrúum Kópavogsbæjar, verktaka byggingarinnar, Umhverfisstofnunar og forstöðumanni Kleifakórs Bryngerði Bryngeirsdóttur.
Undanfarin ár hefur Kópavogsbær tekið mikilvæg skref í búsetumálum fyrir fólk með fötlun, meðal annars með lokun herbergjasambýla og fjölgun annarra búsetukosta sem stuðla að auknu sjálfstæði og bættum lífsgæðum. Kleifakór formlega vígður í júní síðastliðnum .


