Beint í efni
Til baka í yfirlit

Dreg­ið úr slysa­hættu við end­ur­bæt­ur á gatna­mót­um

Undanfarið hefur verið unnið að endurbótum á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Dalvegar. Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaöryggi án þess að draga úr af

Uppdráttur sem sýnir gatnamót Fífuhvammsvegar og Dalvegar eftir breytingu.
Uppdráttur sem sýnir gatnamót Fífuhvammsvegar og Dalvegar eftir breytingu.

Undanfarið hefur verið unnið að endurbótum á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Dalvegar. Markmið framkvæmdanna er að auka umferðaöryggi án þess að draga úr afkastagetu og þjónustustigi gatnamótanna. Íbúar hafa fundið fyrir umferðaraski á meðan framkvæmdir hafa staðið yfir. Verklok voru 30. september en nokkra daga tekur að fínpússa ljósastillingu til þess að flæði umferðar verði sem best í samræmi við markmið framkvæmda.

Komið var að því að endurnýja umferðaljós og var það gert auk þess beygjuljós koma í stað beygjuvasa á þremur stöðum, frá Dalvegi út á Fífuhvammsvegi, frá Fífuhvammsvegi að Dalvegi og frá Fífuhvammsvegi að Smáralind. Með þessum breytingum hefur verið dregið úr slysahættu fyrir gangandi, hjólandi og akandi á gatnamótunum.

Íbúar í hverfinu hafa lengi óskað eftir að umferðaöryggi yrði bætt á þessum stað. Gatnamótin eru á fjölförnum slóðum við Smáralind og meðal annars mikið af börnum og unglingum á ferðinni.

Við undirbúning framkvæmdanna var gerð sviðsmyndagreining og umferðatalning. Áfram verður fylgst með og brugðist við ef umferð mun aukast um Lækjarsmára. Vert er að árétta að afkastageta fyrir fjölskyldubílinn á gatnamótunum á að vera sú sama og fyrir breytingar, samkvæmt greiningum.