Fjölbreytt menningarverkefni hljóta styrki í Kópavogi
Menningar- og mannlífsnefnd úthlutaði tæplega 6,6, milljónum króna til 21 menningarverkefnis á árinu 2027. Styrkirnir renna til fjölbreyttra verkefna á sviði tónlistar, myndlistar, sviðslista og mannlífs. Styrkþegum var fagnað við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni miðvikudaginn 25. nóvember.

Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar hefur úthlutað tæplega 6,6 milljónum króna til 21 menningarverkefnis á árinu 2027. Styrkirnir renna til fjölbreyttra verkefna á sviði tónlistar, myndlistar, sviðslista og mannlífs. Jafnframt hefur nefndin samþykkt 23 milljóna króna framlag til menningarhúsa bæjarins og sjö milljónir króna til nýrrar bæjarhátíðar sem fyrirhuguð er næsta sumar.
Styrkþegum var fagnað við hátíðlega athöfn í Gerðarsafni miðvikudaginn 25. nóvember þar sem formaður menningar- og mannlífsnefndar afhenti styrkina.
„Menningarverkefnin sem hljóta styrk í ár endurspegla þá miklu grósku sem einkennir menningarlíf Kópavogs. Eitt mikilvægasta hlutverk menningarstarfs er að tengja fólk, skapa upplifun og gera bæinn okkar að enn betri stað til að búa á,“ sagði Elísabet Berglind Sveinsdóttir, formaður nefndarinnar, við athöfnina.
Meðal verkefna sem hljóta styrki eru tónleikar og sýningar, ný tónverk, myndlistarverkefni, leiksýningar, fjölskylduviðburðir og ýmis verkefni sem stuðla að samveru og þátttöku íbúa.
Frá rótgrónu menningarstarfi til nýrra hugmynda
Með styrkveitingunum er bæði stutt við rótgróið menningarstarf og nýjar hugmyndir sem færa menningu nær íbúum bæjarins.
Kórarnir í Kópavogi fá áfram stuðning við starfsemi sína og tónleikahald og Leikfélag Kópavogs hlýtur styrk til sýningarinnar Við byggjum bæ, sem sækir innblástur í sögu og mannlíf bæjarins.
Á meðal nýrra verkefna má nefna veggverk og sýningu Söru Riel, tónleikaröðina Kársnesið rokkar fyrir unga tónlistarmenn, hljóðinnsetninguna Tif eftir Sóleyju Frostadóttur og opna söguhringi þar sem íbúar deila minningum og frásögnum.
Einnig fá óvenjulegar og skemmtilegar hugmyndir brautargengi, svo sem Hjólastrætó Kársness, þar sem börn og foreldrar hjóla saman í skólann við tónlist, og fyrsta Íslandsmeistaramótið í að fleyta kerlingar.
Öflugur stuðningur við menningarhúsin
Menningar- og mannlífsnefnd hefur jafnframt samþykkt að verja 23 milljónum króna til menningarhúsa Kópavogs á árinu 2027. Framlaginu er ætlað að styðja við fjölbreytta viðburði, samstarfsverkefni og nýsköpun í menningarstarfi.
Menningarhúsin gegna lykilhlutverki í menningarlífi bæjarins og eru mikilvægur vettvangur fyrir listsköpun, fræðslu, þátttöku og samveru íbúa.
Langtímasamstarf við menningar- og félagasamtök
Á síðasta ári samþykkti menningar- og mannlífsnefnd að ganga til þriggja ára samstarfssamninga við þrjá aðila sem leggja mikilvægt af mörkum til menningar og mannlífs í Kópavogi.
Samningarnir eru við Hamraborg Festival, að fjárhæð 6,5 milljónir króna, Skátafélagið Kópa, að fjárhæð 400 þúsund króna, og Sögufélag Kópavogs, að fjárhæð 400 þúsund króna.
Tvö ár eru eftir af samningunum. Markmið þeirra er að skapa aukinn stöðugleika og fyrirsjáanleika í menningarstarfi og styrkja forsendur fyrir áframhaldandi uppbyggingu.
Ný bæjarhátíð Kópavogs sumarið 2027
Eitt af spennandi verkefnum næsta árs er fyrirhuguð bæjarhátíð Kópavogs sem stefnt er að því að halda í fyrsta sinn sumarið 2027. Menningar- og mannlífsnefnd hefur samþykkt að verja sjö milljónum króna til hátíðarinnar.
Markmiðið er að skapa fjölbreytta menningar- og mannlífshátíð fyrir bæjarbúa á öllum aldri þar sem listir, tónlist, sköpun og samvera verða í fyrirrúmi.
Styrkir til viðburða á árinu 2026
Auk styrkja til verkefna næsta árs voru veittir þrír styrkir vegna viðburða á árinu 2026, samtals 900 þúsund krónur.
Brekkusöngur í Salahverfi hlaut 250 þúsund krónur, Thelma Marín Jónsdóttir hlaut 250 þúsund krónur vegna afmælisviðburðarins Stella í orlofi í Salnum og leikhópurinn Skellibjalla hlaut 400 þúsund krónur til jólasýningarinnar Jólaævintýri Skröggs, sem fyrirhuguð er í Salnum í desember.
Styrkþegar vegna menningarverkefna árið 2027
Eftirtaldir aðilar hlutu almenna menningarstyrki menningar- og mannlífsnefndar:
- Púlsinn – Molinn og Salurinn: 500.000 kr. til samstarfsverkefnis fyrir unga tónlistarmenn.
- Sara Riel: 500.000 kr. til sýningar, gjörnings og veggverks í samstarfi við Y gallery.
- Samkór Kópavogs: 300.000 kr. til kórstarfs og tónleikahalds.
- Finnur Pálmi Magnússon: 44.995 kr. til að efla Hjólastrætó Kársness.
- Gunnsteinn Ólafsson: 200.000 kr. til nýs tónverks fyrir Skólakór Kársness.
- Leikfélag Kópavogs: 500.000 kr. til leiksýningarinnar Við byggjum bæ.
- Karlakór Kópavogs: 300.000 kr. til kórstarfs og tónleikahalds.
- Kvennakór Kópavogs, Blika: 300.000 kr. til kórstarfs og tónleikahalds.
- Irene Hrafnan Bermudez: 300.000 kr. til myndlistarverkefnisins Til útláns – bókverk í umferð.
- Kársnes ehf.: 250.000 kr. til tónleikaraðarinnar Kársnesið rokkar.
- Sigursveinn Þór Árnason: 250.000 kr. til brekkusöngs í Röðasölum.
- Snorri Vignisson: 100.000 kr. til Íslandsmeistaramóts í að fleyta kerlingar.
- Pera Óperukollektíf: 500.000 kr. til söngviðburða á Óperudögum 2027.
- Kór Lindakirkju: 300.000 kr. til tónleikaverkefnisins Kópavogur í gospel.
- BingoBango sf.: 500.000 kr. til fjölskylduleiksýningarinnar Innblástur.
- Sóley Frostadóttir: 200.000 kr. til hljóðinnsetningarinnar Tif.
- Söguhringur Frásagnarfélag: 150.000 kr. til opinna söguhringja í hverfum Kópavogs.
- Y gallery: 500.000 kr. til sýningardagskrár samtímamyndlistar í Hamraborg.
- Steinunn María Þormar: 150.000 kr. til söngleiksins Meðleikur.
- Félag íslenskra píanóleikara: 500.000 kr. til alþjóðlegrar píanókeppni og sumarnámskeiða í Salnum.
- Margrét Erla Maack: 250.000 kr. til verkefnisins Eilífðin, sem tengir sundballett, hreyfingu og samveru.
Samtals nema almennir menningarstyrkir til þessara 21 verkefnis 6.594.995 krónum.
Með styrkveitingunum vill menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar hvetja til áframhaldandi sköpunar, efla fjölbreytni í menningarlífi bæjarins og styðja við það mikilvæga starf sem listafólk, félagasamtök og aðrir menningaraðilar sinna í þágu samfélagsins.


