Jólahús Kópavogs
Leitin að jólahúsi Kópavogs árið 2026 er hafin. Hægt er að senda inn tilnefningar á vef bæjarins til og með 10.desember. Við valið á húsinu er horft til jólafílings, birtu og samhengis við umhverfið.

Leitin að jólahúsi Kópavogs árið 2026 er hafin. Óskað er eftir tilnefningum íbúa sem geta sent inn ábendingar og hugmyndir á vef bæjarins.
Þetta er í fimmta sinn sem leitað er að jólalegasta húsinu í bænum. Í fyrra varð fyrir valinu hús í Reynihvammi 39, en áður hafa Digranesvegur, Daltúni og Múlalind hreppt titilinn.
„Þetta er svo skemmtilegt og dýrmætt að sjá alla þessa ljósadýrð í bænum á myrkasta tíma ársins,“ segir Elísabet Sveinsdóttir, formaður lista- og menningaráðs Kópavogs en það stendur fyrir leitinni að jólahúsinu.
Við valið á húsinu er horft til jólafílings, birtu og samhengis við umhverfið.


