Beint í efni
Til baka í yfirlit

Fræðsla um áhættu­hegð­un ung­linga fyr­ir for­eldra og fag­fólk

Foreldrahús í samstarfi við Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins býður til fræðslu fyrir foreldra barna og ungmenna á aldrinum 12–18 ára og fagfólk sem vinnur með þessum aldurshópi. Fræðslan er hluti af aðgerðaáætlun Farsældarráðs og Sóknaráætlun Höfuðborgarsvæðisins.

Foreldrum og fagfólki í Kópavogi býðst fræðsla um áhættuhegðun unglinga.
Foreldrahús í samstarfi við Farsældarráð höfuðborgarsvæðisins býður til fræðslu fyrir foreldra barna og ungmenna á aldrinum 12–18 ára um áhættuhegðun.

Fjallað verður um áhættuhegðun unglinga, hvaða vísbendingar geta gefið tilefni til að staldra við og hvernig foreldrar og fagfólk geta brugðist við þegar áhyggjur vakna. Áhersla er á snemmtækan stuðning og að grípa inn í áður en vandinn verður meiri.

Hvenær og hvar?

Fræðslan verður í boði á tveimur staðfundum í Kópavogi og einum netfundi á Teams.

  • Þriðjudagur 17. nóvember kl. 17.00
    Staðfundur í Salaskóla, Versölum 5.
  • Fimmtudagur 19. nóvember kl. 17.00
    Staðfundur í Álfhólsskóla í Hjalla, Álfhólsvegi 120.
  • Þriðjudagur 24. nóvember kl. 17.00
    Netfundur á Teams. Smelltu hér til að taka þátt í fræðslunni!

Fræðslan er hluti af aðgerðaáætlun Farsældarráðs og Sóknaráætlun höfuðborgarsvæðisins.

Verið hjartanlega velkomin!