Beint í efni
Til baka í yfirlit

Götu­leik­hús­ið leik­ur fyr­ir alla

Ungmennin í Götuleikhúsi Kópavogs höfðu það að markmiði að gleðja bæjarbúa á öllum aldri yfir sumarið.

Götuleikhús Kópavogs 2026
Trúðagjörningur á 17. júní

Vinnuskólinn í Kópavogi býður íbúum á aldrinum 14–17 ára fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf en götuleikhúsið er hluti af fjölbreyttri starfsemi skólans. Vinnudagar unglinganna eru aldrei eins en þau hafa fengið að skrifa handrit, útbúa leikmyndir, leikmuni og búninga ásamt því að æfa söngva og dansa.

Leikstjóri götuleikhússins í ár er Fríða Katrín Bessadóttir en hún lagði sérstaka áherslu á gjörningalist í sumar. Hún telur gjörninga vera góðan milliveg margra listgreina og þeir bjóði upp á meira frelsi fyrir ungmennin til að rækta sín áhugasvið og finna sitt hlutverk innan listarinnar. Þar að auki þykir henni þessi nálgun auka líkur á því að úr verði ein heild innan hópsins þar sem allir vinna að sama markmiði þrátt fyrir ólík hlutverk.

Götuleikhúsið í Kópavogi 2926

Áhersla var lögð á að útbúa leiksýningar og gjörninga fyrir alla aldurshópa í Kópavogi. Þar má nefna danssýningu á almannafæri og trúðagjörning á 17. júní. Ásamt því að flytja gjörninga í almannarými bauð leikhópurinn upp á opið hús fyrir ungmenni Vinnuskólans þar sem þau fengu þrjá daga til að búa til leikrit saman. Götuleikhúsið ferðaðist einnig á milli félagsheimila eldri borgara í Kópavogi með söngatriði og sagnaskemmtun.

Götuleikhús 2026 Eldri borgarar

Síðasta verkefni sumarsins var að sýna barna- og fjölskylduleikritið Lísu í Undralandi fyrir fjölskyldur í Kópavogi. Leikstjórinn, Fríða Katrín, skrifaði handritið og leit á sýningarnar sem gjöf fyrir fjölskyldur í sumarfríi.

Götuleikhús 2026 Lísa í Undralandi
Lísa í Undralandi var sýnd í leikhúsi Kópavogs
“En sumarið er ekki búið og eiga þau eftir að skapa sér fleiri stórglæsileg verkefni, og mun leikgleðin halda áfram. Þau hafa unnið hörðum höndum við öll verkefnin og ég hef verið svo stolt af þrautseigjunni og dugnaðinum sem sameinar hópinn. Þessir krakkar eru eitt stórt hæfileikabúnt sem eiga bjarta framtíð framundan, stútfull af hlátri,”

segir Fríða Katrín Bessadóttir, leikstjóri Götuleikhúss Kópavogs 2026.