Beint í efni
Til baka í yfirlit

Göt­u­lok­un vegna mal­biksfram­kvæmda

Þriðjudaginn 26. ágúst frá kl. 9:00 til 16:00 verða akreinar til austurs á Fífuhvammsvegi lokaðar.

Þriðjudaginn 26. ágúst frá kl. 9:00 til 16:00 verða akreinar til austurs á Fífuhvammsvegi lokaðar vegna malbikunar við gatnamót Dalvegar. Bent er á hjáleiðir um Skógarlind eða Smárahvammsveg á meðan framkvæmdum stendur.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.