Opið fyrir innsendingar í Ljóðstaf Jóns úr Vör
Menningar- og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar efnir til samkeppni um Ljóðstaf Jóns úr Vör. Öllum er frjálst að senda inn frumsamin ljóð á íslensku undir dulnefni. Hér takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik. Ljóðið má ekki hafa birst áður.

Skilafrestur er til og með 5. nóvember.
Ljóðstafurinn verður afhentur ásamt viðurkenningum þriðjudaginn 21. janúar 2027 við hátíðlega athöfn í Salnum, en þá verða liðin 25 ár síðan Ljóðstafurinn var fyrst veittur.