Beint í efni
Til baka í yfirlit

Full­trú­ar vel­ferðar- og mann­rétt­inda­ráðs heim­sóttu starfs­stöðvar í Kópa­vogs­bæ.

Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði Kópavogs, sem tók til starfa eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, heimsóttu nýverið fjórar starfsstöðvar á vegum bæjarins sem sinna þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk.

Frá vinstri: Björg Baldursdóttir formaður velferðar- og mannréttindaráðs, Gunnlaugur Ragnarsson varamaður, Haukur Már Hauksson varamaður, Svava Halldóra Friðgeirsdóttir varamaður, Örn Arnarson aðalmaður, Sigrún Bjarnadóttir varaformaður, Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir aðalmaður, Elísabet Sveinsdóttir aðalmaður, Bryngerður Bryngeirsdóttir forstöðumaður Kleifakórs og Hannes Þórður Hafstein aðalmaður.

Fulltrúar í velferðar- og mannréttindaráði Kópavogs, sem tók til starfa eftir sveitarstjórnarkosningarnar í vor, heimsóttu nýverið fjórar starfsstöðvar á vegum bæjarins sem sinna þjónustu við eldra fólk og fatlað fólk.

Heimsóknirnar voru liður í því að kynna ráðinu þá fjölbreyttu starfsemi sem velferðarsvið Kópavogsbæjar veitir íbúum. Að þessu sinni voru fjórar starfsstöðvar heimsóttar, en alls eru starfsstöðvarnar átján talsins. Áformað er að velferðar- og mannréttindaráð heimsæki fleiri starfsstöðvar síðar á kjörtímabilinu.

Örvi á Kársnesbraut

Fyrsti viðkomustaður ráðsins var Örvi á Kársnesbraut. Örvi er vinnu- og virkniúrræði fyrir fólk með fötlun þar sem áhersla er lögð á þátttöku, starfsprófun og fjölbreytt verkefni í styðjandi og uppbyggilegu umhverfi.

Marbakkabraut

Ráðið heimsótti einnig Marbakkabraut, sem er heimili fyrir fatlað fólk í formi herbergjasambýlis. Þar fengu fulltrúar innsýn í daglegt starf og þjónustu við íbúa.

Roðasalir

Á Roðasölum kynntu starfsmenn tvíþætta starfsemi staðarins. Annars vegar er þar dagdvöl fyrir fólk með minnissjúkdóma sem býr enn á eigin heimili en þarf umtalsverðan stuðning í daglegu lífi. Hins vegar er þar veitt frístundaþjónusta fyrir fatlaða framhaldsskólanema eftir skóla og yfir sumarmánuðina.

Kleifakór

Síðasti viðkomustaðurinn var Kleifakór, íbúðakjarni fyrir fatlað fólk. Kleifakór er nýjasti íbúðakjarninn í Kópavogi og hóf starfsemi árið 2025. Þar kynntu starfsmenn húsnæðið, þjónustuna og starfsemina sem þar fer fram.

Heimsóknir af þessu tagi gefa fulltrúum ráðsins tækifæri til að kynnast starfseminni af eigin raun og fá dýpri innsýn í þarfir notenda og starfsfólks. Þær styrkja jafnframt tengsl ráðsins við þau mikilvægu úrræði sem bæjarfélagið rekur og veitir íbúum sínum.