Beint í efni
Til baka í yfirlit

Granda­hvarf er gata árs­ins 2026

Grandahvarf er gata ársins 2026 í Kópavogi og er þar með 32. gatan í Kópavogi sem hlýtur nafnbótina.

Gata ársins 2026
Íbúar Grandahvarfs ásamt bæjarstjóra og fulltrúum Kópavogsbæjar í Grandahvarfi við skilti sem sett var upp í götunni. Einnig var gróðursett tré í götu ársins.

Í tilefni þess að Grandahvarf hefur hlotið nafnbótina Gata ársins 2026 komu íbúar, fulltrúar bæjarstjórnar og starfsmenn Kópavogsbæjar saman við opna samverusvæðið í götunni þann 3. september. Við athöfnina afhjúpaði Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri viðurkenningarskilti með dyggri aðstoð ungra íbúa. Þá var birkitré gróðursett íbúum götunnar til heiðurs. Að gróðursetningu lokinni buðu íbúar upp á súkkulaðiköku í tilefni dagsins.

Viðurkenningin Gata ársins hefur verið veitt árlega frá árinu 1995 og er Grandahvarf því 32. gatan sem hlýtur þessa viðurkenningu. Samþykkt var á fundi bæjarráðs 16. júlí, í umboði bæjarstjórnar, að Grandahvarf yrði fyrir valinu árið 2026.

Grandahvarf er snyrtileg og vel við haldin íbúðargata í efri byggðum Kópavogs. Í götunni standa sjö fjölbýlishús sem reist voru á árunum 2006 og 2007, og nýtur hún einstaklega fallegs útsýnis yfir Elliðavatn, Heiðmörk, Bláfjöll og nærliggjandi náttúrusvæði. Sterk tenging við útivist og náttúru setur svip sinn á umhverfið og gerir götuna sérstaka.

Ein af sérkennum Grandahvarfs er sameiginlegt útivistarsvæði í eigu húsfélaganna sem þjónar sem samverustaður íbúanna. Svæðið er vel hirt og gegnir mikilvægu hlutverki í nærumhverfinu, þar sem það stuðlar að samveru, útivist og auknum lífsgæðum íbúa.

Grandahvarf er gata ársins 2026.
Grandahvarf er gata ársins 2026.

Í innsendri tilnefningu var sérstaklega nefnt að íbúar leggi sig fram um að halda umhverfinu fallegu, rækta nágrannakærleika og byggja upp öflugt nærsamfélag þar sem samvinna og virðing eru í fyrirrúmi.

Viðurkenningin er veitt fyrir snyrtilegt og aðlaðandi umhverfi, virka þátttöku íbúa í nærumhverfi sínu, góða hirðu sameiginlegra svæða og sterka samfélagsvitund. Grandahvarf þótti skara fram úr á þessum sviðum og vera til fyrirmyndar þegar kemur að umgengni, samheldni og tengingu við náttúru og umhverfi.