Beint í efni
Til baka í yfirlit

Not­enda­próf­un fyr­ir spjall­menni sem að­stoðar for­eldra

Leitað er liðsinni foreldra til þess að prófa nýtt spjallmenni sem hjálpar foreldrum að finna stuðning fyrir börnin sín, aðstoð eða ráðgjöf. Spjallmennið er í þróun hjá SSH en notendaprófin verða í Kópavogi, 30.nóvember.

Kópavogur
Leitað er eftir foreldrum fyrir notendaprófanir á nýju spjallmenni.

Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, SSH, eru að þróa nýtt spjallmenni sem á að hjálpa foreldrum að finna stuðning fyrir börnin sín, til dæmis styrki, aðstoð í skóla eða ráðgjöf.

Nú vantar okkur foreldra til að prófa þjónustuna og segja okkur hvað virkar vel og hvað við getum gert betur. Við leitum að foreldrum sem tala íslensku, ensku eða pólsku.

Prófunin tekur um hálftíma og fer fram í Kópavogi mánudaginn 30. nóvember. Þú þarft enga sérstaka tækniþekkingu og nafnið þitt verður ekki tengt niðurstöðum prófunarinnar.

Langar þig að vera með?

Fylltu út umsóknina og við höfum samband.

Takmarkað pláss er í notendaprófanirnar en allir sem skrá áhuga fá svar frá okkur.

Fyrirspurnir berist á solrund@kopavogur.is