Beint í efni
Til baka í yfirlit

Að­ventu­há­tíð Kópa­vogs

Aðventuhátíð Kópavogs verður haldin við Menningarhúsin í Kópavogi laugardaginn 28. nóvember frá 14:30 otil 17:00. Boðið er upp á dagskrá inni í menningarhúsunum en frá 16:20 hefst dagskráin utandyra, tendrað er á jólatré Kóavogsbæjar og slegið upp jólaballi.

Aðventuhátíð Kópavogs
Líf og fjör á Aðventuhátíð Kópavogs. Myndin er tekin á hátíðinni 2025.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar við menningarhúsin!

Það verður sannkölluð jólastemning þegar við fögnum upphafi aðventunnar með tónlist, dansi, jólaverkstæðum, skemmtilegum jólaverum og heitu kakói. Hátíðinni lýkur með því að ljósin verða tendruð á jólatrénu og jólasveinarnir mæta til leiks!

Fjölbreytt og skemmtileg dagskrá fyrir alla fjölskylduna.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin!

DAGSKRÁ

Útisvæði / útisvið

15:00-16:15 DJ Sunna Ben á útisviði við menningarhúsin
15:00-16:30 Jólasirkus Pilkington Props og verur á sveimi!
16:20-16:30 Skólahljómsveit Kópavogs leikur við útisvið.
16:30-17:00 Dagskrá á útisviði. Jólaskemmtun og ljósin tendruð á útisvæði menningarhúsanna. Jólaálfarnir Þorri og Þura stýra dagskránni og skemmta. Söngkvartett Jólatímavélarinnar kemur fram og bæjarstjórinn tendrar á jólatrénu. Jólasveinar og jólaball á eftir!

Gerðarsafn

15:00-15:15 Hljóðvefur um Valgerði: Páll Ragnar Pálsson og Tui Hirv
14:30-16:30 Jólaverkstæði ÞYKJÓ
16:00-18:00 Plötusnúður þeytir skífum í safnbúðinni

Salurinn

14:30-16:30 Heitt kakó í boði!
14:30-15:00 Opnun á jólaljósasýningu 1. bekkjar Vatnsendaskóla
15:00-15:20 Brot úr Jóladraumum Íslenska dansflokksins
15:30-15:50 Tríóið Fjarkar kemur fram
16:00-16:20 Kórinn Viðlag tekur vel valin jólalög

Bókasafn Kópavogs

15:00-15:30 Æfum jólalögin saman með Sigga & Ingibjörgu
15:25-15:30 Pop-up frá Kórnum Viðlagi
15:30-16:00 Nemendur Tónlistarskóla Kópavogs koma fram á sviði á 2. hæð

Náttúrusafn Kópavogs

14:30-16:30 Föndrum jólaköngla fyrir smáfuglana