Nýtt skipurit umhverfissviðs
Nýtt skipurit umhverfissviðs hefur tekið gildi. Markmið breytinganna er að bæta þjónustu við íbúa og fyrirtæki, einfalda boðleiðir, skýra ábyrgð og nýta betur mannafla og fjármuni.

Bæjarstjórn hefur samþykkt nýtt skipurit umhverfissviðs Kópavogsbæjar sem tekur gildi 25. nóvember 2026. Markmið breytinganna er að bæta þjónustu við íbúa og fyrirtæki, einfalda boðleiðir, skýra ábyrgð og nýta betur mannafla og fjármuni.
Fjórar skrifstofur auk skrifstofu sviðsstjóra
Fimm deildir víkja fyrir fjórum skrifstofum, auk skrifstofu sviðsstjóra:
- Skrifstofa framkvæmda og samgangna tekur við verkefnum framkvæmdadeildar og gatnadeildar að hluta sem tengjast framkvæmdum og samgöngum. Skrifstofan annast meðal annars stofnframkvæmdir sveitarfélagsins, áætlanagerð, útboð og innkaup vegna þeirra, viðhaldsstýringu samgöngukerfa og málefni almenningssamgangna.
- Skrifstofa skipulags- og byggingarfulltrúa sameinar verkefni skipulagsdeildar og byggingardeildar. Markmiðið er að auka samfellu milli skipulags- og byggingarmála, einfalda málsmeðferð og bæta yfirsýn yfir feril mála.
- Umhverfismiðstöð verður sjálfstæð skipulagseining undir sviðsstjóra og tekur við verkefnum Þjónustumiðstöðvar og hluta verkefna gatnadeildar. Þar verður meðal annars sinnt daglegum rekstri og viðhaldi gatna og veitna, sorphirðu, vetrarþjónustu, hafnarrekstri og umhirðu bæjarlands. Starfsemi vatnsveitu fellur einnig undir Umhverfismiðstöð.
- Skrifstofa fasteigna tekur við af eignadeild og sinnir áfram rekstri og viðhaldi fasteigna bæjarins.
- Skrifstofa sviðsstjóra fær jafnframt aukið hlutverk í sameiginlegum verkefnum sviðsins. Þar verða meðal annars sameinuð verkefni á sviði landupplýsinga, fasteignaskráningar, mæli- og hæðarblaða og lóðarleigusamninga. Verkefni umhverfismála færast einnig til skrifstofunnar.



