Jólapakkarnir vakna til lífsins í Leikfélagi Kópavogs
Hvað gerist þegar klukkan slær ellefu á aðfangadagskvöld og pakkarnir undir jólatrénu eru enn óopnaðir?

Svarið fæst í Jólapökkunum, nýrri fjölskyldusýningu Leikfélags Kópavogs eftir Aðalstein Jóhannsson og Oddfreyju H. Oddfreysdóttur, sem verður frumsýnd 14. nóvember. Þar kynnast leikhúsgestir litríkum jólapökkum sem vakna til lífsins og leggja af stað í óvænt ævintýri.
Leikritið gerist seint á aðfangadagskvöld þegar jólapakkarnir uppgötva sér til mikillar furðu að enn er ekki búið að opna þá. Hvar eru allir? Einn pakkanna er öðruvísi en hinir og þegar hann hverfur verður uppi fótur og fit. Misskilningur, tortryggni og ásakanir taka við og ekki batnar ástandið þegar grunur vaknar um að skrímsli leynist meðal pakkanna.
Undir húmornum, söngnum og hasarnum leynist þó hlý saga um vináttu, fjölbreytileika og mikilvægi þess að dæma ekki aðra eftir útliti. Sýningin er full af tónlist, spennu og jólagleði og hentar jafnt yngri sem eldri áhorfendum.

Leikstjóri sýningarinnar er Ólafur Þórðarson, sem á sjálfur sérstakt samband við jólin enda fæddur á aðfangadag.
„Allir krakkarnir í hverfinu mættu klukkan tíu á aðfangadagsmorgun í afmælið mitt og fóru svo heim rétt áður en jólin voru hringd inn. Ég hef oft hugsað um það síðan hvernig mamma fór eiginlega að þessu,“ segir Ólafur.
Ekki voru þó allir jafnhrifnir af komu hans í heiminn. Þegar fjölskyldan flykktist á fæðingardeildina til að dást að jólabarninu leit systir hans á nýja fjölskyldumeðliminn og þar fékk hann sinn fyrsta leikdóm.
„Henni fannst ekki mikið til mín koma. Hún sagði bara að ég væri ljótur,“ segir Ólafur. „Þannig að kannski hef ég alltaf verið svolítill ljóti pakki.“ Ljóti pakki er einmitt ein af sögupersónum Jólapakkanna.

„Pakkarnir eru alls konar, en þeir eiga allir að geta verið vinir og eru hver á sinn hátt jafnflottir. Boðskapurinn er kannski ekki svo ólíkur Dýrunum í Hálsaskógi og það skiptir máli að dæma ekki eftir útlitinu,“ segir Ólafur.
Jólapakkarnir bjóða áhorfendum inn í heim þar sem jólatöfrarnir lifna við og allt getur gerst. Þetta er undurljúf fjölskyldusýning fyrir alla sem vilja komast í jólaskap og njóta góðrar stundar saman á aðventunni.
Nú er bara um að gera að næla sér í miða á www.tix.is en miðaverð er jólagjöf, aðeins 2500 krónur.


