Kópavogsbær lýstur upp
Jóla- og skammdegislýsing er komin upp víða um Kópavogsbæ eins og venja er á þessum árstíma. Hafist var handa við skreytingar í október og hefur síðan þá verið unnið að uppsetningu ljósanna sem setja fallegan svip á bæinn.

Ljósin fara upp um allan bæ allt frá menningarhúsum og upp í Guðmundarlund, við vegi í bænum og stofnanir. Annað árið í röð verður Kópavogsdalur ljósum prýddur en hugmynd að þeirri skreytingu kemur frá íbúum sem lögðu hana til í Okkar Kópavogi og veittu brautargengi í kosningunum. Kveikt verður á jólastjörnunni á Hálsatorgi föstudaginn 20.nóvember.
Lokahnykkurinn í jólalýsingu bæjarins er svo þegar kveikt er á bæjartréinu þann 28.nóvember á aðventuhátíð Kópavogs.