Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kópa­vogs­bær sæk­ir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness

Árið 2021 samdi Kópavogsbær við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um endurbyggingu við Skólagerði en verkið hafði verið boðið út árið 2020. Skólinn heitir í dag Barnaskóli Kársness og er samrekinn leik- og grunnskóli.

Árið 2021 samdi Kópavogsbær við ítalska verktakafyrirtækið Rizzani de Eccher um endurbyggingu við Skólagerði en verkið hafði verið boðið út árið 2020. Skólinn heitir í dag Barnaskóli Kársness og er samrekinn leik- og grunnskóli.

Innri kostnaðaráætlun Kópavogsbæjar fyrir heildarverkefnið nam í júní 2020, þegar ákveðið var að ráðast í verkefnið, um 4,8 milljörðum króna sem er að núvirði um 6,7 milljarðar.

Verksamningsupphæðin nam 3,2 milljörðum króna og átti að ljúka verkinu 15. maí 2023. Rétt er að geta þess að utan við samning Rizzani var ýmis kostnaður við búnað í skólanum, vinnu hönnuða, umsjón, byggingarstjórn o.fl.

Verkinu er nú að fullu lokið og nemur heildarkostnaður Kópavogsbæjar um 8,7 milljörðum króna og er því 2 milljörðum krónum umfram áætlun bæjarins sem fyrst og fremst má rekja til vanefnda verktakans. Kópavogsbær hefur unnið að því síðustu mánuði að taka saman kröfugerð og gögn vegna þess viðbótarkostnaðar sem féll til vegna verktakaskipta, tafa og stórfelldra galla á verkinu. Kröfugerðin liggur nú fyrir og var kynnt fyrir gerðardómi og bæjarráði nú í vikunni og nemur hún í heild sinni tæpum 3,9 milljörðum króna. Kópavogsbær krefst þess að verktakinn greiði þann kostnað að fullu.

„Kópavogsbær brást við alvarlegri stöðu í framkvæmdum við nýjan grunnskóla þegar ljóst varð að ekki var lengur hægt að una við ítrekaðar og alvarlegar vanefndir verktakans. Gerðardómur hefur staðfest að riftun samningsins hafi verið lögmæt og næsta skref er að sækja fullar bætur vegna málsins. Í dag stendur glæsilegur grunnskóli sem uppfyllir gæðakröfur okkar og hefur skólastarf þar gengið vel frá því það hófst haustið 2025. Við erum afar ánægð með að nemendur, foreldrar og starfsfólk hafi tekið nýrri skólabyggingu vel,“ segir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri Kópavogs.

Forsaga málsins er að verksamningi við verktaka var rift í maí 2023 vegna alvarlegra vanefnda. Þá hefði átt að vera komið að skilum á verkinu en það var þó einungis hálfnað. Verktakinn hafði þá fengið greidda um 2 milljarða króna á núvirði. Auk tafanna hafði Kópavogsbær verulegar áhyggjur af gæðum verksins en mannvirkið hafði staðið opið fyrir veðri og vindum. Einnig lá þá fyrir að undirverktakar höfðu lagt niður störf.

Gallar á verkinu reyndust umfangsmiklir og leiddi það einnig til mikilla tafa. Byggingartíminn, sem átti að vera rúm tvö ár, varð að fimm árum með tilheyrandi óhagræði og kostnaði.

Gerðardómur kvað upp dóm þann 3. september 2024 um að riftunin hefði verið lögmæt og að Rizzani skyldi greiða Kópavogsbæ málskostnað að fullu.