Kópavogur eflir forvarnarstarf með samningi við Planet Youth ehf
Kópavogsbær hefur gert samning við alþjóðlegu samtökin Planet Youth um eflingu gagnadrifins forvarnarstarfs í þágu barna í sveitarfélaginu.

Kópavogsbær hefur gert samning við alþjóðlegu samtökin Planet Youth um eflingu gagnadrifins forvarnarstarfs í þágu barna í sveitarfélaginu. Samningurinn er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu þjónustu sem leggur áherslu á vellíðan, jöfn tækifæri og farsæld allra barna í Kópavogi.
Á undanförnum árum hefur Kópavogsbær þróað sérstakt Mælaborð barna sem safnar saman gögnum um lykilþætti í lífi barna, svo sem menntun, heilsu, félagslega þátttöku og öryggi. Þessi gögn eru nýtt til að forgangsraða aðgerðum og fjármagni á markvissan hátt með það að markmiði að tryggja farsæld barna í sveitarfélaginu.
Samstarfið við Planet Youth markar næsta áfanga í þeirri vegferð að nýta gagnagreiningu til að bæta lífsgæði barna og styðja við upplýstar ákvarðanir í þágu allra barna.
Kópavogur hefur verið í fararbroddi íslenskra sveitarfélaga í innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og hlaut viðurkenningu sem Barnvænt sveitarfélag árið 2021 og endurnýjaða viðurkenningu árið 2024. Mælaborð barna er eitt af umbótaverkefnum sem hafa verið þróuð í tengslum við þessa vinnu og fær nú nýjan kraft með samningi við Planet Youth.
„Samningur Kópavogsbæjar við Planet Youth undirstrikar mikilvægi þess að byggja ákvarðanir á áreiðanlegum gögnum og býr sveitarfélaginu enn frekar í haginn til að tryggja börnum bestu mögulegu lífskjör - nú og til framtíðar,“ segir Amanda K. Ólafsdóttir, tengiliður Kópavogsbæjar við Planet Youth.


