Beint í efni
Til baka í yfirlit

Kópa­vog­ur þrýst­ir á op­in­bera að­ila að tak­marka hækk­an­ir við 2,5%

Kópavogsbær er reiðubúinn að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5% á árinu 2027. Þetta yrði annað árið í röð sem Kópavogsbær takmarkar gjaldskrárhækkanir sínar.

Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri
Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri

Að þessu sinni er settur sá fyrirvari að kjarasamningar haldi og ríki og önnur sveitarfélög séu jafnframt reiðubúin að grípa til sambærilegra aðgerða. Málið var til umræðu í bæjarráði Kópavogs í morgun og var þverpólitísk samstaða um að Kópavogsbær sýni forystu í þessum efnum.

Í apríl 2026 ákvað Kópavogsbær að takmarka hækkanir á gjaldskrám sem snúa að barnafjölskyldum við 2,5%. Jafnframt var ákveðið að draga til baka þann hluta hækkana ársins sem hafði farið umfram þau mörk. Með aðgerðinni lagði Kópavogsbær sitt af mörkum til að verja ráðstöfunartekjur barnafjölskyldna, draga úr verðbólguþrýstingi og styðja við forsendur kjarasamninga.

Með slíkri ákvörðun myndi Kópavogsbær halda aftur af gjaldskrárhækkunum á barnafjölskyldur þrátt fyrir kostnaðarhækkanir í rekstri sveitarfélagsins. Kópavogsbær tæki þannig með beinum hætti þátt í að verja kaupmátt barnafjölskyldna og draga úr verðbólguþrýstingi.

„Kópavogsbær steig mikilvægt skref fyrr á þessu ári þegar ákveðið var að takmarka gjaldskrárhækkanir við verðbólgumarkmið Seðlabankans, með það að markmiði að verja ráðstöfunartekjur heimila. Við þurfum hins vegar öll að leggja okkar af mörkum til að ná tökum á verðbólgunni. Sameiginlegt átak getur stutt við forsendur kjarasamninga, dregið úr verðbólguþrýstingi og skapað skilyrði fyrir lækkun vaxta. Nú er mikilvægt að aðrir opinberir aðilar séu tilbúnir að stíga sömu skref og taka þátt í þessu sameiginlega átaki, að stuðla að lækkun verðbólgu og vaxta. Það er mikið í húfi fyrir íslenskt samfélag.“ segir Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri.