Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ljóð óskast

Auglýst er eftir ljóðum í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Skilafrestur er til 5. nóvember.

Veitt hafa verið verðlaun kennd við Jón úr Vör frá árinu 2001.
Veitt hafa verið verðlaun kennd við Jón úr Vör frá árinu 2001.

Auglýst er eftir ljóðum í ljóðasamkeppninni Ljóðstafur Jóns úr Vör. Skilafrestur er til 5. nóvember. Ljóði skal skilað í einu eintaki sem merkt er dulnefni. Með eintakinu skal fylgja eitt lokað umslag merkt dulnefninu sem inniheldur upplýsingar um nafn, símanúmer og netfang skáldsins. Einungis umslög sem tilheyra vinnings- og viðurkenningarljóðum verða opnuð af dómnefnd en öllum öðrum gögnum eytt. Utanáskrift umslags er: Ljóðstafur Jóns úr Vör Menning í Kópavogi Digranesvegi 1 200 Kópavogi. Um Ljóðstaf Jóns úr Vör Ljóðstafur Jóns úr Vör hefur verið veittur frá árinu 2001 þegar efnt var til ljóðasamkeppni á vegum lista- og menningarráðs Kópavogs, nú menningar- og mannlífsnefnd og Ritlistarhóps Kópavogs, sem hlaut nafnið Ljóðstafur Jóns úr Vör, í minningu skáldsins.

Dómnefnd fer yfir innsend ljóð, sem send eru undir dulnefni. Þannnig takast því á reyndari skáld og þau yngri í jöfnum leik.

Veitt eru peningaverðlaun og verðlaunaskáldið fær til varðveislu í eitt ár silfurskreyttan göngustaf, sem var í eigu Jóns úr Vör. Á stafinn er festur skjöldur með nafni verðlaunahafa ásamt ártali. Verðlaunin eru veitt við hátíðlega athöfn á fæðingardegi Jóns úr Vör þann 21. janúar ár hvert.