Mikil ánægja með Virkni og Vellíðan samkvæmt viðhorfskönnun vorið 2026
Niðurstöður viðhorfskönnunar Virkni og Vellíðan fyrir vorönn 2026 sýna mjög skýrt að þátttakendur meta starfsemina mikils og upplifa hana sem mikilvægan þátt í bættri heilsu, aukinni vellíðan og sterkari félagslegum tengslum.

Niðurstöður viðhorfskönnunar Virkni og Vellíðan fyrir vorönn 2026 sýna mjög skýrt að þátttakendur meta starfsemina mikils og upplifa hana sem mikilvægan þátt í bættri heilsu, aukinni vellíðan og sterkari félagslegum tengslum. Alls svöruðu 362 könnuninni, sem er rúmlega 50% þátttakenda, og gefa svörin sterka og jákvæða mynd af verkefninu.
Virkni og vellíðan hefur heilsuefling 60 ára og eldri að markmiði. Verkefnið er á vegum Kópavogsbæjar í samstarfi við Breiðablik, HK og Gerplu. Í lok hverrar annar er send út viðhorfskönnun til þátttakenda svo unnt sé að þróa verkefnið áfram með skoðun og upplifun þátttakenda að leiðarljósi.
Bætt andleg heilsa
Fram kemur að 92% þátttakenda eru sammála því að líkamlegt ástand þeirra hafi batnað eftir að þeir hófu þátttöku í Virkni og Vellíðan. Einnig segjast 85% finna fyrir bættri andlegri heilsu og 86% telja að þátttakan hafi aukið félagsleg tengsl þeirra. Niðurstöðurnar undirstrika því að áhrif verkefnisins ná langt út fyrir hreyfinguna eina og snúa einnig að andlegri líðan, félagslegri virkni og almennum lífsgæðum.
Ánægja með framkvæmd verkefnisins mælist jafnframt afar mikil. Nær allir þátttakendur, eða 99%, segjast almennt ánægðir með fyrirkomulag Virkni og Vellíðan og 98% eru ánægð með þjálfarana. Þá vekur sérstaka athygli að 100% þeirra sem svöruðu segjast hafa áhuga á að halda áfram í verkefninu á næstu önn. Sá eindregni vilji til áframhaldandi þátttöku er skýr vísbending um gildi starfseminnar fyrir þann hóp sem hana sækir.
Í opinni spurningu voru þátttakendur beðnir um að lýsa Virkni og Vellíðan í þremur orðum. Þar komu aftur og aftur fram orð sem endurspegla sterka jákvæða upplifun, svo sem gleði, skemmtilegt, félagsskapur, samvera, styrkur, vellíðan, hreyfing, jákvæðni og kraftur. Svörin sýna að þátttakendur upplifa verkefnið ekki aðeins sem markvissa heilsueflingu heldur einnig sem mikilvægan félagslegan vettvang þar sem ríkir hvatning, hlýja og samkennd.
Æfingar hápunktur vikunnar
Þátttakendum gafst jafnframt kostur á að koma öðru á framfæri um starfsemina. Þar var tónninn að mestu afar jákvæður og þakklátur. Margir lýstu Virkni og Vellíðan sem ómetanlegu framtaki, sögðu æfingarnar vera hápunkt vikunnar og þökkuðu sérstaklega fyrir fagmennsku, hvatningu og hlýtt viðmót þjálfara. Þá komu einnig fram lýsingar á því að verkefnið hefði eflt fólk bæði líkamlega og andlega og skapað dýrmæt tækifæri til félagslegra samskipta og samveru.
Jafnframt komu fram gagnlegar ábendingar um það sem mætti bæta. Þar nefndu þátttakendur meðal annars aðstöðumál, hávaða, þrif og öryggi á sumum æfingastöðum. Einnig komu fram óskir um meiri festu í æfingaaðstöðu, lengri æfingatíma og fjölbreyttari eða kröftugri æfingar fyrir suma hópa. Þá bentu nokkrir á mikilvægi þess að halda gjaldskrá í hófi svo þjónustan verði áfram aðgengileg sem flestum.
Heildarniðurstaðan er þó afar skýr. Þátttakendur upplifa Virkni og Vellíðan sem öflugt og mikilvægt heilsueflingarverkefni sem styður við líkamlega heilsu, andlega vellíðan og félagsleg tengsl.
Viðhorfskönnun vorannar 2026 staðfestir því að starfsemin hefur fest sig í sessi sem mikilvægur þáttur í lífi margra, og að viljinn til að halda áfram er einróma.

