Beint í efni
Til baka í yfirlit

Ný þjón­ustu­mið­stöð golf­valla GKG

Samstarfsamningur Kópavogs, Garðabæjar og GKG um uppbyggingu nýrrar þjónustumiðstöðvar golfvalla GKG hefur verið undirritaður af bæjarstjórum sveitarfélaganna og GKG.

Samstarfsamningur um Þjónustumiðstöð GKG undirritaður
Agnar Már Jónsson framkvæmdastjóri GKG, Ásdís Kristjánsdóttir bæjarstjóri Kópavogs, Almar Guðmundsson bæjarstjóri Garðabæjar og Jón Júlíusson formaður stjórnar GKG við undirritun samstarfssamnings um uppbyggingu þjónustumiðstöðvarinnar.

Gert er ráð fyrir að þjónustumiðstöðin rísi sunnan megin við bílastæði íþróttamiðstöðvar GKG og verður hún um 1.000 fermetrar að stærð.

Þjónustumiðstöðin mun hýsa tækjakost GKG auk verkstæðis til að þjónusta þau, olíudælum og skiljum, auk geymslna fyrri sand, áburð og fræ.

Kostnaður við bygginguna er áætlaður um 560 milljónir króna og munu Kópavogur og Garðabær greiða tvo þriðju hluta þeirrar upphæðar. Greiðslur sveitarfélaganna skiptast niður á fimm ár, frá 2027 til 2031.

GKG óskaði eftir aðkomu bæjarfélaganna að uppbyggingu þjónustumiðstöðvarinnar síðastliðið haust og voru áformin kynnt í bæjarráðum Garðabæjar og Kópavogs síðastliðið vor.