Beint í efni
Til baka í yfirlit

Hreins­un gatna og stíga

Sópun gatna og stíga í Kópavogi eftir veturinn er hafin. Byrjað verður á helstu stofnæðum en svo verður farið inn í húsagötur. Samhliða hreinsun gatna eru

Hreinsun gatna í Kópavogi.
Hreinsun gatna í Kópavogi.

Sópun gatna og stíga í Kópavogi er hafin. Verkið hófst fimmtudaginn 9.apríl, tveimur vikum síðar en í fyrra vegna veðurs.

Byrjað verður á helstu stofnæðum en svo verður farið inn í húsagötur. Íbúum er gert viðvart áður en farið er í götur þeirra með sms skilaboðum og skiltum, þannig að þeir get fært bíla sína ef þörf krefur. Áætlað er að hefjast handa í húsagötum í lok apríl.

Samhliða hreinsun gatna eru stígar sópaðir. Áætluð verklok eru í byrjun júní.