Beint í efni
Til baka í yfirlit

Sum­ar­dag­ur­inn fyrsti í Kópa­vogi

Skátafélagið Kópar býður fjölskyldum í Kópavogi á sumarhátíð í Kópavogsdalnum við skátaheimili Kópa, Digranesvegi 79 til að fagna Sumardeginum fyrsta.

Skátafélagið Kópar stendur fyrir fjölskylduhátíð í Kópavogsdal sumardaginn fyrsta.
Skátafélagið Kópar stendur fyrir fjölskylduhátíð í Kópavogsdal sumardaginn fyrsta.

Skátafélagið Kópar býður fjölskyldum í Kópavogi á sumarhátíð í Kópavogsdalnum við skátaheimili Kópa, Digranesvegi 79 til að fagna Sumardeginum fyrsta. Hátíðin fer fram milli 13:00-16:00.

Á dagskrá verða Hoppukastalar, fjölskylduratleikur, himnastigaáskorun og varðeldafjör. Skátar í fjáröflun standa fyrir sölu á kandífloss, vöfflum og fleira góðgæti.

Fögnum komandi sumri saman í Kópavogi.

Við hvetjum öll til að nýta sér virka samgöngumáta og hjóla, labba eða taka strætó til okkar á hátíðina. Fyrir þau sem koma á bíl bendum við á þau fjölmörgu bílastæði sem eru á Smáratorgi, sem eru í aðeins nokkurra mínútna fjarlægð frá skátaheimilinu.

Hátíðin er styrkt af Kópavogsbæ.