Beint í efni
Til baka í yfirlit

Lok­að fyr­ir kalt vatn 19.maí

Loka þarf fyrir allt vatn í Kópavogi vegna tengingar á nýjum vatnstanki við veitukerfi bæjarins frá 22.00 þann 19.maí. Framkvæmdin tekur um fimm tíma.

Loka þarf fyrir allt vatn í Kópavogi vegna tengingar á nýjum vatnstanki við veitukerfi bæjarins.

Lokunin mun standa frá kl 22.00 þann 19. maí næstkomandi og tekur um fimm tíma.

Lokunin mun ekki hafa áhrif á vatnsöflun til Garðabæjar.

Nokkur ráð

  • Vinsamlegast athugið að það getur myndast loft í kerfinu eftir að vatni hefur aftur verið hleypt á og það getur verið skynsamlegt að hreinsa síur í vatnsinntökum og blöndunartækjum.
  • Góð hugmynd gæti verið að fylla á vatnsflöskur fyrir klukkan 22.00 ef þörf er á vatni fyrir nóttina og setja vatn í fötur fyrir klósett.
  • Athugið að þau sem eru með varmaskipta geta lent í því að ekki komi heitt vatn á meðan lokun stendur.
  • Eingöngu kemur heitt vatn úr blöndunartækjum og því hætta á að fólk brenni sig ef skrúfað er frá krana.