Lokanir á Arnarnesvegi og Rjúpnavegi fimmtudag 15. okt.
Malbiksframkvæmdir á nýju hringtorgi á Arnarnesvegi og Rjúpnavegi orsaka umfangsmiklar lokanir

Kópavogsbær og Vegagerðin hafa gefið verktaka heimild til lokunar á Arnarnesvegi og Rjúpnavegi fimmtudaginn 15. október vegna malbikunar.
Lokuninni verður skipt í tvo áfanga.
Fyrri áfanginn er lokun á bæði Rjúpnavegi og Arnarnesvegi og mun sú lokun vara á milli klukkan 9:00-12:00. Hjáleið er um Reykjanesbraut og Breiðholtsbraut.
Seinni áfanginn er á milli klukkan 12:00 – 16:00 og þá mun Rjúpnavegurinn vera lokaður á milli Hvarfatorgs og að Kóravegi/Ásakórs. Hjáleið er um Arnarnesveg og Vatnsendaveg.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.