Lokun á Digranesvegi 15. ágúst vegna malbikunar
Ef veður leyfir er fyrirhugað að malbika Digranesveg milli Vallatraðar og Digranesheiðar laugardaginn 15. ágúst og verður gatan lokuð á meðan framkvæmdum stendur frá kl. 9:00 til 17:00.

Ef veður leyfir er fyrirhugað að malbika Digranesveg milli Vallatraðar og Digranesheiðar laugardaginn 15. ágúst og verður gatan lokuð á meðan framkvæmdum stendur frá kl. 9:00 til 17:00. Bent er á hjáleið um Vogatungu og Hlíðarveg. Tvístefna verður á Álftröð og verður aðkoma frá Háveg en sýna þarf aðgát þegar bílar mætast sökum þrengsla. Íbúar og gestir að húsum við Digranesveg 20-78 er bent á að nota bílastæði við MK og Kópavogsskóla á meðan framkvæmdum stendur. Aðkoma að stæðunum er frá Álfhólsvegi.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.