Beint í efni
Til baka í yfirlit

Mal­bik­un­ar­fram­kvæmd­ir mánu­dag­inn 10. ág­úst 2026 til kl. 20

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 20:00 mánudaginn 10. ágúst.

Vegagerðin hefur gefið heimild til eftirtalinna verka ef veður leyfir:

Mánudaginn 10. ágúst er stefnt á að malbika hringtorg á Arnarnesvegi við Smárahvammsveg.

Arnarnesvegur verður lokaður milli Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar.

Nónhæð og Smárahvammsvegur lokast einnig við Arnarnesveg.

Hjáleiðir og merkingar verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.16.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 09:00 til kl. 15:00 mánudaginn 10. ágúst.

Einnig er stefnt á að malbika akrein til austurs í Sundagörðum.

Sundagarðar verða lokaðir á milli Sundaborgar og Sundabakka.

Hjáleiðir og merkingar verða settar upp skv. viðhengdri merkingaráætlun 8.0.27.

Áætlað er að framkvæmdirnar standi frá kl. 14:00 til kl. 20:00 mánuudaginn 10. ágúst.

Vegfarendur eru beðnir um að virða merkingar og hraðatakmarkanir og sýna aðgát við vinnusvæðin.

Vinnusvæðin eru þröng og menn og tæki eru við vinnu mjög nálægt akstursbrautum.

Ábyrgðarmaður veghaldara er Ásgeir 844-4069 og ábyrgðarmaður verktaka er Ársæll 891-7446.