Beint í efni
Til baka í yfirlit

Styrk­ir til náms, verk­færa- og tækja­kaupa fatl­aðs fólks

Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms og kaupa á verkfærum og tækjum

Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fyrir fatlað fólk.

Kópavogsbær auglýsir eftir umsóknum um styrki til náms og kaupa á verkfærum og tækjum.

Styrkirnir eru ætlaðir til að hjálpa fötluðu fólki að efla færni sína og auka þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.

Hægt er að sækja um styrk vegna:

  • námskostnaðar sem er ekki greiddur annars staðar,
  • kaupa á verkfærum eða tækjum vegna heimavinnu eða sjálfstæðrar starfsemi eftir að endurhæfingu lýkur.

Með umsókn þarf að skila vottorði sem staðfestir fötlun og upplýsingum um hvernig styrkurinn nýtist umsækjanda.

Vegna náms þarf einnig að skila staðfestingu frá skóla og kvittun fyrir náms- eða skólagjöldum. Vegna verkfæra eða tækja þarf að skila kvittun fyrir kaupunum.

Umsóknarfrestur er til og með 30. september 2026.

Sótt er um rafrænt í Þjónustugátt Kópavogsbæjar

Nánari upplýsingar má finna í reglum Kópavogsbæjar um styrki til náms, verkfæra- og tækjakaupa fatlaðs fólks með langvarandi stuðningsþarfir.