Veitur endurnýja hitaveitulagnir
Veitur eru að endurnýja stofnlögn hitaveitu fyrir Kársnesið.
Vegna tafa verður vinna í Borgarholtsbraut ekki hafin fyrr en núverandi áfanga lýkur og við höfum opnað fyrir umferð um Kópavogsbraut. Það má gera ráð fyrir að vinna í Borgarholtsbraut hefjist undir lok ágúst og við munum láta ykkur vita áður en kemur að því.
Þá verður ekki hægt að keyra inn að húsum númer 1,3 og 5, en aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda tryggt allan tímann.
Nánar um framkvæmdina ásamt myndum má sjá á vef Veitna: https://www.veitur.is/framkvaemdir/Karsnesaed_2025_26