Beint í efni
Til baka í yfirlit

Um­hverf­is­við­ur­kenn­ingar veittar fyr­ir um­hirðu og end­ur­gerð

Umhverfisviðurkenningar skipulags- og umhverfisráðs voru veittar miðvikudaginn 26. ágúst í Salnum Kópavogi. Að þessu sinni voru fjórar viðurkenningar, þrjár fyrir umhirðu húss og lóðar og ein fyrir endurgerð húsnæðis.

Handhafar umhverfisviðurkenninga umhverfis- og skipulagsráðs ásamt nefndarfólki og forseta bæjarstjórnar Kópavogs.

Umhverfisviðurkenningar skipulags- og umhverfisráðs voru veittar miðvikudaginn 26. ágúst í Salnum Kópavogi. Að þessu sinni voru fjórar viðurkenningar, þrjár fyrir umhirðu húss og lóðar og ein fyrir endurgerð húsnæðis.

Það voru Hjördís Ýr Johnson, formaður skipulags- og umhverfisráðs og Elísabet Sveinsdóttir sem afhentu viðurkenningarnar að viðstöddum gestum.

Fjölskylduhúsið í Baugakór

Eigendur: Tinna Þorsteinsdóttir og Jónas Gunnarsson, Guðrún Steinþórsdóttir og Þorsteinn Pálmarsson, Grahame Andrew Cummings, og Eva Þorsteinsdóttir og Sigurbjörg Guðmundsdóttir og Hafþór Halldórsson

Umhverfisviðurkenning 2026, eigendur Baugakórs 30
Hluti eigenda og íbúa í Baugakór 30 ásamt formanni skipulags- og umhverfisráðs, Hjördísi Ýr Johnson og forseta bæjarstjórnar Elísabetu Sveinsdóttur.

Baugakór 30 hlýtur viðurkenningu fyrir umhirðu húss og lóðar. Húsið er fjögurra íbúða fjölbýlishús, byggt árið 2007 eftir teikningum arkitektanna Gunnars Páls Kristinssonar og Gunnlaugs Jónassonar. Lóðin var hönnuð af landslagsarkitektunum Björk Guðmundsdóttur og Ingu Rut Gylfadóttur. Þess má geta að í núverandi eigendahópi eru systur og foreldrar þeirra og hafa íbúar fjórðu fjölskyldunnar verið „ættleiddir.“

Baugakór 30
Baugakór 30.

Áhersla íbúa frá upphafi hefur verið lögð á að halda húsinu og lóðinni snyrtilegri, einfaldri og vel hirtri. Garðurinn hefur þróast með það að markmiði að vera fallegur og aðgengilegur, án of umfangsmikils viðhald. Regluleg umhirða og samstillt átak íbúa hefur skilað sér í einstaklega vel viðhaldinni eign þar sem bæði hús og umhverfi bera vott um alúð og metnað. Að sögn íbúa er ein af helstu ástæðum árangursins góð samheldni og sameiginleg ábyrgð á viðhaldi og umgengni.

Alúð og umhyggja við Bjarnhólastíg

Eigandi: Þuríður Backman.

Umhverfisviðurkenning 2026
Hjördís Ýr Johnson, Þuríður Backman og Elísabet Sveinsdóttir.

Bjarnhólastígur 2 hlýtur viðurkenningu fyrir umhirðu húss og lóðar. Húsið og lóðin bera þess merki að hafa verið sinnt af alúð í gegnum tíðina og að eigendur hafa lagt metnað sinn í að skapa fallegt og notalegt umhverfi.

Þuríður keypti húsið ásamt manni sínum heitnum Bjarna Kristleifssyni. Fyrri eigendur höfðu lagt grunn að skipulagi lóðarinnar en mikið af fjölærum gróðri á lóðinni í dag fékkst á plöntuskiptidögum Garðyrkjufélags Íslands en Þuríður var formaður þess um skeið.

Garðurinn einkennist af fjölbreyttum og gróskumiklum gróðri sem veitir bæði skjól og fegurð. Á lóðinni má finna stór tré, runna, rósir og fjölærar plöntur sem mynda skjólgóðan og vistvænan sælureit fyrir íbúa og fuglalíf. Skipulag garðsins tekur jafnframt mið af því að hann sé bæði aðlaðandi og hagnýtur til útivistar og samveru.

Umhverfisviðurkenningar 2026 Bjarnahólastígur 30
Garðurinn við Bjarnahólastíg 30.

Húsið, sem byggt var á sjötta áratug síðustu aldar, hefur verið þróað og lagað að þörfum íbúa með virðingu fyrir upprunalegum karakter þess. Á undanförnum árum hafa meðal annars verið gerðar umbætur á útirými, garðskála breytt í sólstofu og gróðurhús reist úr endurnýttu byggingarefni.

Fjölbreyttur gróður í glæsilegum garði í Holtagerði

Eigendur: Elín Guðbjartsdóttir og Marten Ingi Lövdahl

Umhverfisviðurkenning 2026. Elín Guðbjartsdóttir og Marten Ingi Lövdahl eru eigendur Holtagerðis 58.
Marten Ingi Lövdahl og Elín Guðbjartsdóttir, eigendur Holtagerðis 58 ásamt Hjördísi Ýr Johnson og Elísabetu Sveinsdóttur.

Holtagerði 58 fallegt Sigvaldahús á Kársnesinu sem hlýtur viðurkenningu í flokknum umhirða húss og lóðar. Eigendur hafa haldið í upprunalegan svip og karakter hússins og garðsins á sama tíma og þeim er sinnt af kostgæfni og alúð.

Húsið, sem reist var árið 1961, hefur verið haldið einstaklega vel í gegnum tíðina. Eigendur hafa lagt áherslu á að viðhalda ytra útliti þess og virða upprunalega hönnun við allar endurbætur og viðgerðir.

Holtagerði 58.
Holtagerði 58.

Garðurinn er eitt helsti prýði eignarinnar. Hann hefur að stórum hluta haldið sínu upprunalega skipulagi en um leið þróast og tekið breytingum í takt við þarfir og umhirðu. Þar má finna fjölbreyttan gróður, falleg tré og runna, auk glæsilegs hlyns sem setur sterkan svip á umhverfið. Sérstaklega skjólgóður hluti garðsins, svokölluð „gryfjan“, skapar notalegt rými þar sem blómstrandi gróður og sígrænar plöntur njóta sín árið um kring.

Vönduð og vel heppnuð endurgerð við Þinghólsbraut

Eigendur: Lilja Dögg Stefánsdóttir og Reynir Stefán Gylfason.

Skipulags- og umhverfisráð veitir Þinghólsbraut 63 umhverfisviðurkenningu í flokknum endurgerð húsnæðis fyrir vel heppnaða og vandaða endurgerð á eldra húsnæði við sjávarsíðuna við Kópavog.

Umhverfisviðurkenning 2026
Stefán Jökull Reynisson og Andrea Örvarsdóttir tóku við viðurkenningu fyrir hönd eigenda Þinghólsbrautar 63, Stefán er sonur eigendanna. Hér ásamt þeim Hjördísi Ýr Johnson og Elísabetu Sveinsdóttur.

Núverandi eigendur hafa markvisst unnið að endurbótum á húsinu frá því þau festu kaup á því. Fyrstu verkefnin beindust að viðhaldi og endurnýjun á ytra byrði hússins. Árið 2019 var síðan reist tveggja hæða viðbygging sem fellur vel að húsinu og styrkir bæði notagildi þess og heildarsvip. Jafnframt voru svalir stækkaðar og endurbættar með það að markmiði að tengja betur saman innra og ytra rými og njóta hins einstaka sjávarútsýnis sem staðurinn býður upp á.

Þinghólsbraut 63.
Þinghólsbraut 63.

Samhliða framkvæmdunum var ráðist í umfangsmikla endurhönnun lóðarinnar. Með breytingunum notagildi lóðarinnar aukið en gerðir voru fjölbreyttir dvalarstaðir til útiveru og samveru. Áhersla var lögð á að nýta sérstöðu staðarins við sjóinn, varðveita útsýni til hafs og fjalla og skapa um leið fallegt og aðlaðandi umhverfi.

Þinghólsbraut 63 er til fyrirmyndar fyrir metnaðarfulla uppbyggingu þar sem hús, lóð og landslag mynda samræmda og vandaða heild.