Beint í efni
Til baka í yfirlit

Upp­skeru­dagar Skap­andi Sum­ar­starfa 17. - 24. júlí

Uppskeruhátíð Skapandi Sumarstarfa er með breyttu sniði í ár en hátíðin mun spanna heila viku af uppákomum, sýningum og viðburðum.

Uppskerudagar Skapandi Sumarstarfa 2026

Uppskerudagarnir eru 17. - 24. júlí en afrakstur verkefna listafólksins verður sýndur víðs vegar um bæinn.

Viðburðirnir fara fram í samstarfi við helstu menningarhús Kópavogs, þar á meðal Leikhús Kópavogs, Salinn, Bókasafn Kópavogs, Sundlaug Kópavogs og Gerðarsafn. Hluti lokaverkefna verður jafnframt samofinn öðrum menningarhátíðum sem fara fram í Kópavogi líkt og Hamraborg Festival og Vöku þjóðlistarhátíð.

Skapandi Sumarstörf hafa verið fastur liður í menningarlífi bæjarins í tvo áratugi og gefið hundruðum ungra skapandi einstaklinga tækifæri til að þróa hugmyndir sínar, öðlast starfsreynslu og stíga sín fyrstu skref í listsköpun og frumkvöðlastarfi.

Í sumar voru 15 verkefni valin til þátttöku í Skapandi Sumarstörfum úr fjölmörgum umsóknum. Að baki þeim standa 24 ungmenni á aldrinum 18-25 ára sem vinna að fjölbreyttum skapandi verkefnum í sumar, auk fjögurra þátttakenda í vegglistarhóp. Verkefnin spanna meðal annars fatahönnun, margmiðlunarlist, kvikmyndagerð, tónlist, heimildaljósmyndun, skúlptúrgerð, sviðslistir og samfélags- og gjörningalist.

Hér má sjá dagskrá Uppskerudaga Skapandi Sumarstarfa 2026 í heild sinni.

Upp­skeru­dagar Skap­andi sum­ar­starfa 2026

Uppskerudagar Skapandi sumarstarfa 2026

Uppskeruhátíð Skapandi Sumarstarfa er með breyttu sniði í ár en hátíðin mun spanna heila viku af uppákomum, sýningum og viðburðum.

Dagskrá

🎭 17. júlí kl. 20:00 // Það sem enginn sagði mér

📍 Leikhús Kópavogs

Leiksýning eftir Agnesi Emmu Sigurðardóttur

🎟️ Miðar á Tix.is

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/4Of0OclwF

🖼️ 20.-24. júlí // Sýningaropnun tveggja lokaverka kl 16:00-18:00 þann 20. júlí

📍Náttúrustofa Kópavogs (neðsta hæð Bókasafns Kópavogs)

• Photomapping Kópavogur, ljósmynda og listaverkasýning + pop-up sýningar víðsvegar um Kópavog eftir Eyrúnu Sigtryggsdóttur.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/4DQ7UUja9

• Skúlptúrverk eftir Sigrúnu Hebu Arnardóttur til sýnis alla vikuna á Náttúrustofu.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/4PZemi9EV

💬 21. júlí kl. 17:30

Má þetta? - Fyrirlestur í Salnum

📍Salurinn (forsalur)

Niðurstöður úr rannsóknar- og gjörningalistaverki eftir dans- og sviðslistakonurnar Mörtu Ákadóttur og Maríu Kristínu Jóhannsdóttur.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/4OLQ7Lg82

🎼 22. júlí kl 17:30 // SmÁbreiður og GÚA: Tónleikar

📍Salurinn (forsalur)

• SmÁbreiður er verkefni tónlistarmannanna Sigurðar Snorra Blomsterberg og Arnalds Breka Gústafssonar, þar sem þeir flytja lög í nýjum búningi eftir þekkta Kópavogsbúa

• Tónskáldið GÚA flytur kvikmyndatónlist sem var samin í sumar við stuttmyndaverkefnið “Innra barnið og endurheimtin”

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/4BpVpwVnY

🎭🌀 23. Júlí kl 12:00-18:00 // YMJA með öllu

📍Gerðarsafn

• Gjörningarlistahópurinn YMJA með öllu flytur lokaverk sitt, úthaldsgjörning, í Gerðarsafni

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/77FIdG4SO

🎂🎨 23. Júlí kl 14:00-17:00 // Smjörkrem og súrrealismi

📍Gerðarsafn

• Kökulistaverk eftir Hrafnhildi Sunnu Eyþórsdóttur, sem byggir á verkum listamannsins Roger Dean.

ATH: Kakan skorin og í boði kl 16:00.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/9hUQi5XLB

🌿🔊 23. Júlí kl 14:00-18:00 // Ef steypan gæti sungið og grasið gæti flautað

📍Salurinn

• Innsetningarverk eftir listakonuna Kolbrúnu Óskarsdóttur, einnig þekkt sem KUSK, byggt á hljóðum Kópavogs.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/3FT3uCSkq

🖌️🧱 23. júlí kl. 14:00-18:00 // VEGGLIST

📍Salurinn (forsalur)

• Vegglistahópur Skapandi sumarstarfa Kópavogs 2026; Agnes Marí Gunnarsdóttir, Baldur Thor Aðalbjarnarson, Birkir Blær Gylfason og Freyja Stígsdóttir, býður í móttöku og ljósmyndasýningu sem veitir innsýn í vegglistaverk sumarsins sem hafa verið unnin víðs vegar um Kópavog.

🔗 Hlekkur á event:

🪩 23. Júlí kl 18:00 // Ósamhverfa

📍Bílakjallari Molans, Hábraut 2

• Tískusýning og gjörningur sem skoðar snertiflöt myndlistar og fatahönnunnar.

Listamenn: Rökkvi Kárason og Þorleifur Thorlacius

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/6gmUvZOWS

Verkefni sem verða sýnd síðar í sumar eða í haust:

📽️🎞️ 20. ágúst kl 20:00 // BROT

📍Salurinn

• Tilraunakennt heimildarverk sem sameinar ljósmyndun, kvikmyndagerð, Super 8-upptökur og myndlist eftir Ingu Malen Anderssen og Jun Gunnar Lee Egilsson.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/75W877iWG

🎬 21. ágúst kl 20:00 // Lífið hennar Lísu í svörtu og hvítu

📍Salurinn

• Stemnings-kvikmynd í anda frönsku nýbylgjunnar eftir Hafeyju Lipku Þormarsdóttur, Odd Sigþór Hilmarsson og Úlf Elíasson Arnalds.

🔗Hlekkur á event: https://fb.me/e/c3GVrKOsO

🎲🐉September-Október 2026 // D&D ævintýri (spunaspil)

📍Félagsmiðstöðvar í Kópavogi

• Guðmundur Hrafn Geirsson leiðir glænýtt Dungeons & Dragons ævintýri sem hann skapaði í sumar og bregður sér í hlutverk Dungeon Master. Opið fyrir öll áhugasöm börn og unglinga í Kópavogi.

🎙️😈 13. september // Púkablístran

📍VAKA þjóðlistarhátíð

• Nýtt tónlistar- og útvarpsleikrit sem sækir innblástur sögur Sæmundar Fróða og íslenskan sagnaarf og verður frumflutt á VÖKU þjóðlistarhátíð. Verkið kemur einnig út á Spotify í lok ágúst.

🔗 Hlekkur á event: https://fb.me/e/4U3fxNvNY